Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1071  —  619. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um endurhæfingarlífeyri.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hver voru útgjöld ríkissjóðs vegna endurhæfingarlífeyris á fjárlögum undanfarin 20 ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum, upphæð og sem hlutfall af fjárlögum fyrir hvert ár.
     2.      Hver var fjöldi endurhæfingarlífeyrisþega á tímabilinu? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Hefur endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgað? Ef svo er, hver er ástæðan fyrir fjölguninni?
     4.      Hvernig er eftirliti með málaflokknum háttað?


Skriflegt svar óskast.