Ferill 620. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1072 — 620. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um upphaf skóladags í framhaldsskólum.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Hefur ráðherra og ráðuneytið átt formlegt samráð og samtöl um eða unnið greiningar á möguleika þess að seinka upphafi skóladags í framhaldsskólum með hliðsjón af rannsóknum á svefni ungmenna og áhrifum hans á námsárangur og líðan sem sýna að um 90% nemenda á framhaldsskólastigi fá ekki nægan nætursvefn?
2. Hver er afstaða ráðherra til þess að kanna sérstaklega hvort seinkun upphafs skóladags geti stuðlað að bættum svefni, námsárangri og betri líðan framhaldsskólanema?
3. Hver er afstaða ráðherra til þess að ráðast í tilraunaverkefni eða að unnar verði leiðbeiningar til framhaldsskóla um sveigjanlegra upphaf skóladags?
4. Liggur fyrir samgöngustefna fyrir framhaldsskóla, sem ásamt breyttu upphafi skóladags gæti minnkað tafir á umferð í ljósi þess að eftir að skólar hefjast á haustin lengist ferðatími á einkabíl um allt að 30 mínútur úr Hafnarfirði í miðborg Reykjavíkur?
Skriflegt svar óskast.