Ferill 621. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1073  —  621. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um aðgengi Íslands að kaupskipum á háskatímum.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Þar sem ekkert íslenskt kaupskip hefur siglt undir íslenskum fána í rúma tvo áratugi, hefur þá verið lagt mat á það að hvaða marki aðgangur Íslands að þessum skipum gæti takmarkast eða glatast komi til alþjóðlegra átaka, neyðarástands eða annarra alvarlegra truflana á alþjóðlegum flutningakeðjum?
     2.      Hefur ráðuneytið unnið eða látið vinna greiningar um mögulegar afleiðingar þessa fyrir íslenskt samfélag? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þeirra?
     3.      Telur ráðherra að núverandi staða sé ásættanleg? Ef svo er ekki, hvaða aðgerða telur ráðherra að hægt sé að grípa til?


Skriflegt svar óskast.