Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1077  —  490. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um fjárframlög og styrki til samtaka og stofnana.


     1.      Hver hafa reglubundin og óreglubundin fjárframlög eða styrkir utanríkisráðuneytisins til samtaka og stofnana, innlendra og erlendra, á árunum 2021 til febrúar 2026 verið? Svar óskast sundurliðað eftir árum, samtökum og stofnunum.
    Eftirfarandi styrkir og fjárframlög til samtaka og stofnana hafa verið greidd frá árinu 2021 til febrúar 2026. Um er að ræða tilfærslur samkvæmt lögum um opinber fjármál, þ.e. styrki eða framlög sem innt eru af hendi án skuldbindingar um beint endurgjald frá móttakanda. Í þeim tilfellum þar sem vísað er til erlendra stjórnvalda er um að ræða verkefni sem viðkomandi stjórnvöld höfðu milligöngu eða fyrirsvar um framkvæmd, og þá oft með þátttöku fleiri ríkja. Sá fyrirvari er settur að ríkisreikningur vegna ársins 2025 hefur ekki verið staðfestur og framlög ársins 2026 hafa aðeins verið greidd að hluta til.

Almanaksár
Stofnun eða samtök 2021 2022 2023 2024 2025 2026 (jan.–feb.)
ABC Barnahjálp 3,5 12,7 22,7 20,0 29,4
Action Aid Malawi 4,8
Alþjóðabankinn 339,3 1.236,1 1.357,9 1.215,1 1.145,0 1.110,5
Alþjóðaglæpadómstóllinn (ICC) 27,8 33,4 18,1 30,9 21,9
Alþjóðahafréttardómstóllinn (ITLOS) 0,7 0,8 0,8 0,8
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) 13,0 6,8 6,4
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) 15,9 22,4 22,1 22,0 21,8
Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) 50,0 50,0 40,0 30,0 40,0
Alþjóðastofnun um endurnýjanlega orku (IRENA) 2,3 60,4 54,5 51,3
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) 24,5 24,8 105,5 58,5 25,8 13,3
Alþjóðlega fólksflutningastofnunin (IOM) 2,3 6,4 4,5 11,5
Amazonian Initiative Movement 1,2
Ascent Soccer 0,5 5,3 24,5
Atlantshafsbandalagið (NATO) 208,9 189,1 324,2 325,9 309,0 79,1
Aurora velgerðarsjóður 4,8 4,3 7,8 15,6 7,1
Áhugamannafélag Afríka 20:20 3,0
Barnaheill – Save the Children 76,2 96,6 130,4 132,0 137,0 104,3
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) 573,8 784,1 1.129,2 925,1 1.344,8
Björt sýn – styrktarfélag 4,0
Bureau International des Expositions 1,9 3,0 1,4 1,4 1,4
CAFF-skrifstofan á Íslandi 5,6 2,9 -1,5
CLF á Íslandi, félag 7,4 6,8 17,4 21,3 1,8
Danska varnarmálaráðuneytið 592,8 705,4
Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) 238,6 222,7 300,9 286,1 302,3
Efnavopnastofnunin (OPCW) 3,0 3,6 3,7 4,1 4,1 4,1
EFTA-dómstóllinn 76,8 43,4 79,6 81,2 75,4 10,9
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) 244,6 204,7 270,5 286,4 297,2 85,8
Eistneska fjármálaráðuneytið 1.087,1
Endev 40,7 100,3 52,9
Environmental Defense Fund (EDF) 39,8
ESTDEV 10,3 -0,7
European Endowment for Democracy (EED) 27,5 27,0 27,3 60,0 60,0
European Humanities University 15,5
Evrópska öndvegissetrið um fjölþáttaógnir í Helsinki (Hybrid CoE) 5,8 8,9 7,5 8,0 8,8
Evrópuhreyfingin, félagasamtök 10,0
Evrópuráðið 127,6 80,6 101,0 99,7 101,3
Eystrasaltsráðið (CBSS) 14,4 16,4 29,9 13,2 33,1
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 10,9 9,0 12,0 12,0 17,8
FIDA Uganda 29,6
Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) 270,5 530,0 588,8 604,6 658,5
Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) 113,4 132,3 139,4 169,3 117,6 27,1
Future for Ukraine 166,3
GADNET 1,8
Gavi – COVAX 500,0 250,0
Gimli Film Festival 0,3
Global Equality Fund 12,7 26,4 27,1 100,0 -87,0
Go Fund a Girl Child 4,4 4,2 8,5
Græni loftslagssjóðurinn (GCF) 74,3 82,2 110,8 106,5
Hafréttarstofnun Íslands 8,9 8,9 8,9 8,9
Handknattleikssamband Íslands 0,7
Háskóli Íslands 5,8 2,6 18,4 5,3
Háskólinn á Akureyri 27,1 15,6 5,3 13,6
Heimssýn 10,0
Héraðsyfirvöld í Malaví 399,3 424,3 383,6 874,1 559,2 120,1
Héraðsyfirvöld í Úganda 652,2 777,2 755,8 68,7 -16,3
Hinsegin dagar í Reykjavík 0,5
Hjálparstarf kirkjunnar 81,6 150,0 147,2 140,0 171,0 118,3
Hollenska utanríkisráðuneytið 98,7
Hringborð Norðurslóða (Arctic Circle) 15,0 15,0 15,0 15,0 15,0
Icelandic Festival of Manitoba 2,1 1,1
ILGA World 20,0
International Humanitarian Fund for Victims of Repression in Belarus 10,0 10,0
International Institute for Sustainable Development 0,8
International Seabed Authority 0,4 1,2 0,7
Ipas 1,9 21,4 22,2 70,5 85,7
ISHR 20,0
Írska varnarmálaráðuneytið 6,1 1,3
Íslandsstofa 812,0 885,0 1.031,3 1.164,7 1.214,0 208,3
Íslenska barnahjálpin 4,0 15,7
Kalak, grænlensk-ísl. félagið 1,5
Klasasprengjusamningurinn (CCM) 0,1 0,1 0,1
Landssamband ungmennafélaga 6,0 0,3 2,6
Landssamtökin Þroskahjálp 6,6 6,5 11,1 8,2
Leif Eiriksson Icel. Club 1,6
Lífgrös 4,0
Lýðheilsustofnun Norðlægu víddarinnar (NDPHS) 4,6 2,3 2,2 2,2
Læti!, félagasamtök 3,5 7,0 3,5
Lögberg-Heimskringla 1,5 1,5 1,9 1,9 1,7
Malawi Human Rights Commission 20,5 16,4 16,2
Mannfjöldasjóður SÞ (UNFPA) 481,4 535,8 820,8 1.040,0 1.155,7
Mannréttindaskrifstofa Íslands 4,0 4,3 4,0 4,0 1,3
Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO) 18,0 79,5 41,6 26,1 58,0 53,8
Matvælaáætlun SÞ (WFP) 358,5 582,0 1.403,2 964,9 1.141,0
Menningarmálastofnun SÞ (UNESCO) 107,2 100,0 84,8 104,6 98,0 15,3
Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna 3,2 3,7 3,3 3,4
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 6,0
NATO Cooperative Cyber Defence Center of Excellence 3,9 2,8
NATO NSATU Trust Fund 527,9 172,9 300,0
NATO PURL 1.000,0 1.000,0
NATO UCAP -0,1 253,9 309,2 374,3
Neyðarsjóður SÞ (CERF) 95,0 280,0 320,0 190,0 200,0
NGO Center for Memory and Reparations 0,5
Norðurskautsráðið (Arctic Council Secretariat) 13,0 14,3 13,6
Norðurslóðanet Íslands 31,2 60,0 32,4 40,7 34,6
Norræna Afríkustofnunin (NAI) 4,8 4,3 4,0 12,6 12,9
Norræna ráðherranefndin 307,3 311,4 297,3 293,8 304,5 101,3
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) 45,7 50,0 72,0 70,0 198,0
Outright International 10,0 150,0
OXFAM 34,9
Palestinian Medical Relief Society (PMRS) 12,7 13,5 13,7 13,5 12,9
Palestínuflóttamannaaðstoð SÞ (UNRWA) 45,0 71,0 309,7 290,0 348,3
PAME-skrifstofan á Íslandi 5,6 1,4 0,6 0,9
PFMU Sierra Leone 4,3 17,8 -4,1
Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís 10,8 15,8 11,0
Rauði krossinn á Íslandi 297,8 337,5 349,0 270,0 302,4 232,6
Römpum upp Ísland 15,0
Salone Civic Festival 1,3
Samband íslenskra kristniboðsfélaga 15,3 8,2 4,5 21,0 24,1
Sameinuðu þjóðirnar 283,0 583,9 485,5 434,6 575,9 180,4
Samhæfingarskrifstofa SÞ vegna mannúðarmála (OCHA) 213,7 366,4 548,6 738,9 579,2
Samningur Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) 26,0 28,1 26,8 1,5
Samningur um bann við útbreiðslu kjarnavopna (NPT) 0,1
Samningur um tiltekin hefðbundin vopn (CCW) 0,2 0,1
Samningurinn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO) 5,1 4,9 7,0 6,8 7,1 6,6
Save the Children International 41,0 25,4
Security Council Report 2,0
SEforALL 59,4 55,9 160,5 112,9
Skógræktarfélag Íslands 1,0
Skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) 54,0 69,4 43,7 95,0 95,0
Slysavarnafélagið Landsbjörg 5,3
SOS Barnaþorpin 40,9 81,3 97,4 90,8 153,6 114,8
Sól í Tógó 2,0
SPES – alþjóðleg barnahjálp Ísl. 1,0 -0,4
Stómasamtök Íslands 3,0
Styrktarfélag Haven Rescue Home 4,0
Styrktarfélagið Broskallar 18,0 8,0 25,0 20,0 25,0
Styrktarsjóðir Atlantshafsbandalagsins 58,8
Sýkla- og eiturvopnasamningurinn (BWC) 0,1 0,1
Tékkneska varnarmálaráðuneytið 300,1 300,0
The Gender Justice Unit 7,8 7,5
Trócaire 63,9
Tækniþróunarsjóður 1,0
Ukraine Defense Contact Group (UDCG) 874,4 1.250,0
Ukraine Energy Support Fund 212,0 100,0 225,0 300,0
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) 0,6
UN Women 216,8 302,9 444,0 384,8 522,5
Landsnefnd UN Women Ísland 11,5 13,8 15,0 15,0 18,0
Ungir umhverfissinnar 0,4
Landsnefnd Unicef Ísland 9,0 7,5 12,0 12,0 12,0
Uppbyggingarsjóður EES 1.036,5 1.557,5 2.772,4 1.256,9 581,8
Varðberg félag áhugamanna um vestræna samvinnu 0,3 4,0
Varnarmálaráðuneyti Úkraínu 60,0 23,2
Veðurstofa Íslands 0,5
Verkefnaþjónusta SÞ (UNOPS) 81,9 193,9 102,6
Vinir Kenía og Tansaníu 1,7 1,6 1,8
Vopnaviðskiptasamningurinn (Arms Trade Treaty Secretariat) 0,2 0,2 0,3 0,2 0,2
Votlendissjóðurinn 2,3 0,4
VVOB Uganda 100,7
Women's Centre for Legal Aid and Counselling 12,7 13,2 13,7 13,6 13,1
Youth & Child Network 0,4
Þjóðræknisfélag Íslendinga 1,4 1,4 1,4 1,4
Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) 219,6 231,5 420,2 641,6 885,7 70,0
ÖBÍ réttindasamtök 2,0
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE) 42,0 73,3 14,3 29,0 38,7 14,3
Ýmsir smærri styrkir til menningarviðburða á sendiskrifstofum 14,5 14,6 14,3 12,7 15,0 10,3

     2.      Eru allir styrkir eða fjárframlög auglýst til umsóknar og er umsóknar- og valferlið gegnsætt?
    Ákvarðanir um fjárframlög til stofnana og samtaka taka mið af fjölmörgum þáttum hverju sinni. Í tilviki alþjóðastofnana er í mörgum tilvikum um að ræða framlög sem byggjast á aðild Íslands að viðkomandi stofnun. Þar er ýmist um að ræða skyldubundin framlög eða framlög sem taka mið af stefnu íslenskra stjórnvalda í viðkomandi málaflokki og byggjast oft og tíðum á rammasamningum eða samningaviðræðum aðildarríkja um endurfjármögnun.
    Hvað félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð áhrærir eru styrkir til innlendra félagasamtaka auglýstir með reglubundnum hætti. Úthlutað er samkvæmt reglum utanríkisráðuneytisins um styrki til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020 og verklagsreglum um samstarf við íslensk félagasamtök um þróunarsamvinnuverkefni. Styrkumsóknir eru metnar af óháðum matshópi sem gerir tillögur til ráðherra um úthlutun og ráðstöfun fjár til verkefna og er tilkynnt á heimasíðu ráðuneytisins um styrkveitingar hverju sinni.
    Framlög og styrkir sem veittir eru vegna þátttöku í varnartengdum verkefnum eru ekki auglýstir. Styrkir sem veittir eru af ráðstöfunarfé ráðherra eru ekki auglýstir en veittir á grundvelli umsókna um styrki.

     3.      Eru gerðir samningar og er framvinduskýrslum skilað?
    Styrkir og framlög eru greidd á grundvelli samninga eða skuldbindinga sem stofnað er til með öðrum hætti. Fyrirkomulag þessa er mismunandi og tekur mið af samstarfi hverju sinni, sbr. 1. mgr. svars við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Að sama skapi eru skil á framvinduskýrslum með ólíkum hætti.
    Í tilviki styrkveitinga kveða lög nr. 153/2015 um opinber fjármál á um að gera skuli skriflegan samning um einstaka styrkveitingar, nema um sé að ræða minni háttar styrki, og skulu framlög samkvæmt þeim háð skilyrðum um fullnægjandi skýrslugjöf um framvindu verkefna og reikningsskil. Í ljósi þessa eru gerðir sérstakir samningar um fjárframlög til stofnana og samtaka ýmist í formi rammasamninga eða sérstakra samninga um einstök verkefni eða framlög.

     4.      Hvernig er ferli, framkvæmd og eftirfylgni við framangreint?
    Eftirfylgni með framkvæmd og fjárreiðum er háð eðli verkefna og fyrirkomulagi, sbr. svör við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar. Vöktun og eftirlit með fjárreiðum og árangri er mikilvægur þáttur í eftirfylgni með framlögum utanríkisráðuneytisins til stofnana og samtaka. Ráðuneytið og sendiskrifstofur sinna eftirliti með framkvæmd verkefna og árangri, m.a. með virkri þátttöku í stjórnarstarfi stofnana og reglubundnu tvíhliða samráði við samstarfsaðila. Almennt lúta erlendir samstarfsaðilar sjálfstæðu eftirlitskerfi og sæta reglulegri endurskoðun á fjárreiðum, auk þess sem gerðar eru reglulegar úttektir á alþjóðastofnunum og samtökum sem rýndar eru í ráðuneytinu.
    Ferli, framkvæmd og eftirfylgni með styrkjum til þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar byggjast á bestu starfsvenjum og öllum fjárframlögum er fylgt eftir með tilliti til skilvirkni og árangurs. Í tilviki félagasamtaka er vinnulag í samræmi við reglur nr. 1035/2020 sem settar eru með vísan til 5. gr. reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018, sbr. 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og á grundvelli 10. gr., sbr. 6. og 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Hvað úttektir áhrærir er á vettvangi þróunarsamvinnu unnið samkvæmt úttektarstefnu sem uppfærð er með reglubundnum hætti. Þá er fjárhagslegu eftirliti sinnt sem og áreiðanleikamati (e. due diligence) ef þannig ber undir, en samningsrýni og niðurstöður úr fjárhagslegu eftirliti eru alla jafna ekki birtar opinberlega.