Ferill 625. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1083  —  625. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs.


Flm.: Ragna Sigurðardóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Víðir Reynisson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson.


    Alþingi ályktar að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskoða V. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, með það að markmiði að tímabil viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs valdi ekki óhóflegri skerðingu á greiðslum til foreldra sem eignast börn með stuttu millibili.
    Alþingi ályktar jafnframt að fela ráðherra að endurskoða viðmiðunartímabil greiðslna til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði.
    Ráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis á Alþingi eigi síðar en 1. maí 2027.

Greinargerð.

    Samkvæmt 1. og 2. mgr. 23. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex almanaksmánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Sé einstaklingur sjálfstætt starfandi miðast greiðslur hans við tekjuárið á undan fæðingarári barns.
    Hér á landi nær framangreint viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna lengra aftur en annars staðar á Norðurlöndunum. Jafnframt er á Íslandi miðað við fæðingarmánuð barns, en á öðrum Norðurlöndum er viðmiðunartímabil greiðslna oft ákveðið tímabil áður en orlofstaka hefst. Fyrirkomulagið sem er við lýði á Íslandi getur haft þau áhrif að greiðslur til þeirra sem eignast barn með stuttu millibili endurspegla verr tekjur foreldra en greiðslur til þeirra foreldra sem eignast barn með lengra millibili. Gerist það þegar viðmiðunartímabil greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði fyrir seinna barn tekur mið af gömlu greiðsluviðmiði foreldris meðan foreldrið er í fæðingarorlofi.
    Viðmiðunartímabil launagreiðslna sem nær langt aftur getur jafnframt haft áhrif á þá foreldra sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Þekkt er að einstaklingar eða pör seinki barneignum til að tryggja framfærslu fjölskyldunnar eftir fæðingu barns. Að öðrum kosti búa fjölskyldur við lægri fæðingarorlofsgreiðslur kjósi þær að eignast barn fljótlega eftir nám eða eftir að full þátttaka er hafin á vinnumarkaði.
    Lagt er til að viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna verði endurskoðað með það að markmiði að tryggja framfærslu þeirra foreldra sem ákveða að eignast börn snemma á starfsævinni eða eignast fleiri en eitt barn með stuttu millibili.