Ferill 626. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1085 — 626. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um eldsneytisbirgðir Landhelgisgæslu Íslands.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hvernig er núverandi staða á eldsneytisbirgðum fyrir flugflota Landhelgisgæslu Íslands utan höfuðborgarsvæðisins?
2. Á hvaða stöðum, utan Reykjavíkur, geta þyrlur Landhelgisgæslunnar nálgast eldsneyti á þær?
3. Telur ráðherra að þeir staðir séu nægilega margir og dreifðir um landið svo fyllsta öryggis sé gætt?
4. Hvernig og hversu fljótt er brugðist við ef eldsneyti rennur út eða klárast á viðkomandi stöðum?
Skriflegt svar óskast.