Ferill 575. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1086 — 575. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um styrki til félagasamtaka til að efla umræðu um Evrópumál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig uppfylltu styrkir samkvæmt heimild í fjáraukalögum III fyrir árið 2025 að upphæð 25 millj. kr. til tveggja félagasamtaka til að „efla umræðu um Evrópumál“ skilyrði reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018? Óskað er sérstaklega upplýsinga um hvernig skilyrði eftirfarandi greina voru uppfyllt:
a. 3. gr. um að gæta beri jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun styrkja.
b. 5. gr. um að skriflegar úthlutunarreglur þurfi að liggja til grundvallar úthlutun styrkja.
c. 6. gr. um skyldu ráðherra til að auglýsa fyrirhugaða styrki þegar um er að ræða tiltekna flokka styrkja eða framlaga á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál.
d. 7. gr. um skriflega úthlutunarskilmála og úthlutunarsamninga.
Í svari utanríkisráðherra við fyrri fyrirspurn þingmannsins um umræddar styrkveitingar, sjá þskj. 688, mál 364, er rakið að ákvæði laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, séu ekki fortakslaus um auglýsingaskyldu. Í greinargerð með frumvarpi til laga um opinber fjármál segir um 42. gr.: „Séu margir aðilar að sinna sambærilegum verkefnum gæti t.d. í einhverjum tilvikum verið rétt að auglýsa slíkar styrkveitingar opinberlega til að jafnræðis sé gætt.“ Þannig er gert ráð fyrir að ekki sé auglýst í öllum tilvikum. Þá teljast ákvæði reglugerðar nr. 642/2018, sem sett er með stoð í lögum um opinber fjármál, ekki fortakslaus um slíka auglýsingaskyldu.
Í 6. gr. reglugerðar nr. 642/2018 segir að þegar um sé að ræða tiltekna flokka styrkja eða framlaga sem ráðuneyti hyggjast veita á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, skuli ráðherra, a.m.k. einu sinni á ári, með opinberri auglýsingu á heimasíðu ráðuneytis, í fjölmiðlum eða opinni samráðsgátt ráðuneyta, vekja athygli á þeim fyrirhuguðu styrkveitingum og kalla þannig eftir umsóknum frá styrkhæfum aðilum. Í auglýsingu skuli m.a. vísa til úthlutunarreglna sem settar eru skv. 5. gr. reglugerðarinnar og úthlutunarskilmála skv. 7. gr. hennar.
Lesa verður reglugerðarákvæðið í ljósi laganna og ásetnings löggjafans eins og hann birtist í greinargerð við frumvarp til laga um opinber fjármál. Þá er 6. gr. reglugerðarinnar ekki afdráttarlaus og endurspeglar þá sýn úr greinargerðinni. Þannig er talað um að auglýsa skuli „tiltekna flokka“ styrkja en ekki er skilgreint í reglugerðinni hvaða flokka vísað er til. Tilvísun um a.m.k. einu sinni á ári getur bent til þess að hér sé fyrst og fremst átt við reglulega styrki og ljóst að úthlutunarreglur væru bara settar ef til stæði að auglýsa styrki. Að öðru leyti gildir um ákvörðun um styrkveitingu góðir stjórnsýsluhættir. Þá á 7. gr. reglugerðarinnar aðeins við um styrkveitingar samkvæmt auglýsingu. Gerðir voru skriflegir samningar um styrkveitinguna á grundvelli 2. mgr. 42. gr. laga um opinber fjármál þar sem tilgreindir eru skilmálar fyrir henni.
Þá er vísað til svars utanríkisráðherra á þskj. 688, mál 364, þar sem því er svarað hvernig umræddar styrkveitingar samrýmast 42. gr. laga um opinber fjármál og rakið er að utanríkisráðuneytið líti svo á að jafnræðis, hlutlægni og samkeppnissjónarmiða hafi verið gætt.