Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1111  —  425. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um örorkubætur til erlendra ríkisborgara.


     1.      Hversu hárri fjárhæð námu örorkubætur árin 2020–2025?
    Í töflu 1 má sjá heildarfjárhæð greiðslna vegna örorku á árunum 2020–2025. Með greiðslum vegna örorku er átt við eftirfarandi bótaflokka; örorku- og hlutaörorkulífeyri, aldurstengda örorkuuppbót, aldursviðbót örorku- og hlutaörorkulífeyris, tekjutryggingu örorkulífeyrisþega, heimilisuppbót, orlofs- og desemberuppbót á tekjutryggingu örorkulífeyris, orlofs- og desemberuppbót á heimilisuppbót örorkulífeyris, sérstök uppbót til framfærslu örorkulífeyrisþega og uppbót vegna breytts örorkukerfis 2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 1.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Millj. kr. 53.089 56.389 60.933 67.324 70.863 77.854
Heimild: Tryggingastofnun.


     2.      Hvernig skiptust örorkubæturnar eftir kyni og aldri öryrkja?
    Í töflu 2 má sjá hvernig heildarfjárhæð greiðslna vegna örorku skiptist eftir kyni og aldri þeirra sem fengu slíkar greiðslur á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 2.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Karlar 20.473 21.761 23.610 26.183 27.612 30.280
        18–29 ára 3.168 3.307 3.452 3.730 3.719 3.763
        30–39 ára 3.556 3.810 4.386 4.974 5.392 5.959
        40–49 ára 3.869 4.273 4.609 5.237 5.683 6.269
        50–59 ára 4.735 4.889 5.190 5.616 5.866 6.590
        60–67 ára 5.146 5.482 5.973 6.626 6.952 7.700
Konur 32.616 34.628 37.322 41.141 43.251 47.570
        18–29 ára 2.415 2.483 2.814 2.967 2.805 2.772
        30–39 ára 5.259 5.658 5.992 6.619 6.899 7.168
        40–49 ára 7.118 7.595 8.343 9.441 10.124 11.217
        50–59 ára 8.763 9.192 9.730 10.658 11.121 12.360
        60–67 ára 9.061 9.700 10.443 11.455 12.303 14.057
Samtals 53.089 56.389 60.933 67.324 70.863 77.854
Heimild: Tryggingastofnun.

     3.      Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
    Í töflu 3 má sjá heildarfjárhæð greiðslna vegna örorku til erlendra ríkisborgara á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 3.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Millj. kr. 1.648 1.877 2.326 2.839 3.232 3.610
Heimild: Tryggingastofnun.

     4.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
    Í töflu 4 má sjá heildarfjárhæð greiðslna vegna örorku til einstaklinga sem skráðir voru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslum vegna örorku samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Tafla 4.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Millj. kr. 233,8 285,3 393,8 526,1 622 720
Heimild: Tryggingastofnun.

     5.      Hvernig skiptist ríkisfang tveggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
    Í töflu 5 má sjá hvernig heildarfjárhæð greiðslna vegna örorku til einstaklinga sem skráðir eru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025 skiptist eftir ríkisfangi einstaklinganna. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslum vegna örorku samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Tafla 5.

Fjárhæð 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Ísland* 119,6 147,8 165,6 224,4 241,7 312,3
Sýrland 53,9 55,2 80,5 96,2 118,8 111,3
Írak 15,8 27,6 47,2 50,3 55,0 62,8
Venesúela 4,7 7,0 21,1 51,2 79,9 83,2
Afganistan 15,9 15,0 28,4 43,1 51,8 48,3
Palestína 4,8 11,8 20,6 24,3 27,1 41,9
Íran 10,4 10,1 15,3 14,6 12,4 15,7
Suður-Súdan 3,4 3,6 3,8 4,2 4,6 5,4
Kína 2,1 3,4 3,6 4,0 4,6 4,2
Sómalía 0,7 4,3 4,9 5,3 5,5
Jemen 3,5 5,2 5,5
Eþíópía 3,8 4,0 4,2
Aserbaísjan 1,7 4,2 4,6
Ríkisfangslaus 3,1 3,3 3,5
El Salvador 3,0 3,7
Úkraína 1,5 5,0
Alsír 2,6 3,8
Rússland 2,5
Samtals 233,8 285,3 393,8 526,1 622,0 720,0
Heimild: Tryggingastofnun.
*Greiðslur til einstaklinga sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt en voru áður með alþjóðlega vernd og erlent ríkisfang.
     6.      Hversu hátt hlutfall beggja fyrrgreindra hópa fékk örorkubætur árin 2020–2025?
    Hvorki ráðuneytið né Tryggingastofnun hafa upplýsingar um heildarfjölda þeirra einstaklinga sem dvelja hér á landi hverju sinni með dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um hversu hátt hlutfall hópsins fékk örorkubætur árin 2020– 2025. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslum vegna örorku samkvæmt lögum um almannatryggingar.