Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1113  —  427. mál.


                                  
                                  

Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um barnalífeyri til erlendra ríkisborgara.

                                  
     1.      Hversu hárri fjárhæð nam barnalífeyrir árin 2020–2025?
    Í töflu 1 má sjá heildarfjárhæð greidds barnalífeyris á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 1.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
5.362 5.716 6.140 6.971 7.780 8.472
Heimild: Tryggingastofnun.


     2.      Hvernig skiptist barnalífeyririnn eftir kyni?
    Í töflu 2 má sjá hvernig greiddur barnalífeyrir skiptist eftir kyni þeirra sem fengu slíkar greiðslur á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.
                                  

Tafla 2.

Ár
2020 2021 2022 2023 2024 2025
Karlar 1.535 1.644 1.761 1.991 2.200 2.394
Konur 3.827 4.071 4.379 4.980 5.580 6.078
Heimild: Tryggingastofnun.

     3.      Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
         Í töflu 3 má sjá heildarfjárhæð greidds barnalífeyris til erlendra ríkisborgara á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 3.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
269 310 363 476 640 793
Heimild: Tryggingastofnun.

     4.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
    Í töflu 4 má sjá heildarfjárhæð barnalífeyris sem greiddur var til einstaklinga sem skráðir voru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Tafla 4.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
61,5 80,2 98,9 142,4 215,6 290,3
Heimild: Tryggingastofnun.

     5.      Hvernig skiptist ríkisfang beggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
    Í töflu 5 má sjá hvernig greiddur barnalífeyrir til einstaklinga sem skráðir voru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025 skiptist eftir ríkisfangi einstaklinganna. Miðað er við skráð ríkisfang í lok hvers árs. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Tafla 5.

Ár

2020 2021 2022 2023 2024 2025
Sýrland 18,2 25,5 32,0 41,7 65,1 65,7
Ísland* 24,6 29,4 28,7 37,4 42,3 57,1
Palestína 1,3 6,2 13,6 29,9 71,8
Írak 5,9 6,7 7,4 11,1 17,6 25,3
Afganistan 2,8 4,8 6,5 7,9 12,9 18,3
Venesúela 0,9 1,0 3,5 8,1 13,8 14,7
Sómalía 3,0 5,5 8,3 8,8 9,9
Íran 0,9 0,2 1,3 1,7 5,1 7,6
Úganda 2,1 2,1 1,9 2,2 3,3 3,1
Marokkó 1,6 5,3 4,6
Kólumbía 1,3 1,3 1,4 1,0 1,0 2,0
Gana 0,9 0,7 0,5 1,0 1,1 1,2
Súdan 0,9 0,9 0,9 1,0 1,0 0,6
El Salvador 0,3 0,5 1,6 1,7 1,2
Perú 1,3 1,0 0,0 0,0 1,0 1,7
Nígería 0,4 0,4 0,5 0,5 0,6 1,3
Alsír 0,2 0,5 0,5 1,4 0,6
Kasakstan 0,4 0,4 0,5 0,5 0,6 0,6
Jemen 1,0 1,0 0,6
Makedónía 0,9 1,2
Kenía 0,1 0,5 0,6 0,6
Ríkisfangslaus 0,6 0,4 0,5
Suður-Súdan 0,4 0,4 0,5
Kína 0,4 0,5
Eþíópía 0,5 0,3
Hondúras 0,7
Kamerún 0,0 0,1 0,1
Líbanon 0,2
Samtals 61,5 80,2 98,9 142,4 215,6 290,3
Heimild: Tryggingastofnun.
*Greiðslur til einstaklinga sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt en voru áður með alþjóðlega vernd og erlent ríkisfang.