Ferill 561. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1115 — 561. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Eydísi Ásbjörnsdóttur um meðalverð á landaðri loðnu til frystingar.
Ráðuneytið beindi fyrirspurninni til Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
1. Hvert er meðalverð á landaðri loðnu til frystingar á Íslandi annars vegar og í Færeyjum hins vegar fiskveiðiárið 2025/2026?
Meðalverð á landaðri loðnu til frystingar á Íslandi fiskveiðiárið 2025/2026 er 80,64 kr/kg samkvæmt gögnum Verðlagsstofu.
Meðalverð á landaðri loðnu í Færeyjum er 250 kr/kg samkvæmt svörum frá Vørn 1 til Fiskistofu.
2. Hver er sundurliðun meðalverðs átta stærstu sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi á heildarmagni loðnu til frystingar fiskveiðiárið 2025/2026?
| Meðalverð á loðnu 2026 | |
| Fyrirtæki 1 | 89,48 kr. |
| Fyrirtæki 2 | 67,64 kr. |
| Fyrirtæki 3 | 81,35 kr. |
| Fyrirtæki 4 | 69,95 kr. |
| Fyrirtæki 5 | 87,87 kr. |
| Fyrirtæki 6 | 85,52 kr. |
| Fyrirtæki 7 | 82,33 kr. |
| Fyrirtæki 8 | 83,40 kr. |
Eftirfarandi fyrirvarar eru gerðir við svarið:
Reglulegur frestur til að skila vigtar- og ráðstöfunarskýrslum til Fiskistofu er allt að einum mánuði og 20 dögum. Þar sem landanir loðnu á yfirstandandi fiskveiðiári eru að mestu síðustu tvo mánuði er ekki hægt að tryggja að um sé að ræða heildstætt yfirlit yfir verðmæti og ráðstöfun aflans.
Samkvæmt kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna frá 6. febrúar 2024 byggist uppgjör til sjómanna á uppsjávarveiðum á umsömdu hlutfalli af áætluðu skilaverði afurða. Fyrirtæki hafa síðan allt að tvo mánuði til að skila lokauppgjöri til sjómanna. Það verð sem kemur fram í vigtar- og ráðstöfunarskýrslum, innsendum til Fiskistofu og sem þessi gögn byggja á, getur breyst eftir að lokauppgjör liggur fyrir.
Birting eða frekari miðlun á sundurliðun niður á fyrirtæki gæti verið háð takmörkunum, m.a. vegna samkeppnissjónarmiða.
1 Stofnun sem sér um fiskveiðieftirlit og björgunarstörf í færeyskri lögsögu.