Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1116  —  445. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um skattrannsóknir.


     1.      Hversu margir einstaklingar og lögaðilar sættu skattrannsókn árin 2006–2025 og hversu mörg voru málin?
    Fjármála- og efnahagsráðuneytið býr ekki yfir svörum við þeim spurningum sem fram koma í fyrirspurninni og byggjast svörin á upplýsingum frá Skattinum.
    Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda þeirra mála sem lokið var með rannsóknarskýrslu skattrannsóknarstjóra sem rannsóknareiningar Skattsins, á árunum 2006–2025, ásamt skiptingu eftir því hvort um ræðir einstaklinga eða lögaðila. Frá 1. maí 2021 starfar skattrannsóknarstjóri innan Skattsins, eftir sameiningu embættanna. Hafa verður í huga að fjöldi mála miðast við þau mál sem lokið hefur verið með rannsóknarskýrslu en aðrir aðilar kunna að hafa sætt rannsókn sem síðar var felld niður. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum liggja ekki fyrir tölur um fjölda tilvika þar sem rannsókn var felld niður vegna þess tímabils sem um er spurt. Það er þó mat stofnunarinnar að hlutur þeirra af heildinni sé lítill. Unnt er að upplýsa að á síðustu þremur árum var rannsókn alls 15 mála felld niður þar sem grunur reyndist ekki á rökum reistur. Í hverju máli kunna fleiri en einn einstaklingur að hafa stöðu sakbornings og sæta þá rannsókn í þeim skilningi. Fjöldi sakborninga liggur ekki fyrir.
              
Ár Fjöldi rannsóknarskýrslna Lögaðilar Einstaklingar
2006 156 61 95
2007 135 79 56
2008 149 98 51
2009 123 68 55
2010 78 38 40
2011 114 58 56
2012 102 65 37
2013 101 47 54
2014 101 38 63
2015 95 57 38
2016 74 50 24
2017 119 81 38
2018 97 59 38
2019 92 60 32
2020 82 53 29
2021 70 51 19
2022 25 20 5
2023 68 35 33
2024 91 68 23
2025 63 47 16

     2.      Hver var meðaltími þessara rannsókna? Hversu langan tíma tók lengsta rannsóknin?
    Í eftirfarandi töflu getur að líta meðaltalsmálsmeðferðartíma þeirra mála sem lokið var á tímabilinu 2006–2025 með rannsóknarskýrslu, auk upplýsinga um lengsta rannsóknartíma, í dögum.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Þess ber að geta að forsendur útreiknings á málsmeðferðartíma breytast frá og með árinu 2022. Fyrir rannsóknir sem lokið var 2006–2021 miðast tímatalning við upphaf rannsóknar og til dagsetningar lokaskýrslu. Fyrir árin 2022–2025 miðast tímatalning við upphaf rannsóknar og til málsmeðferðarloka hjá Skattinum sem er þá annaðhvort endurákvörðun skatta og/eða sekt, eða með vísun máls til héraðssaksóknara.
    Áðurnefnd breyting skýrist af lagabreytingum sem tóku gildi árið 2021, með lögum um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn skattalagabrota, nr. 29/2021, þar sem embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins var fært undir Skattinn. Markmið breytinganna var m.a. að auka skilvirkni, stytta málsmeðferð og einfalda ferli við rannsókn og saksókn skattalagabrota. Í framhaldinu var sett reglugerð um framkvæmd skatteftirlits og skattrannsókna, nr. 808/2022, sem tók gildi 30. júní 2022.
    Málsmeðferðartími þeirra mála sem lengstur er skýrist í megindráttum af eðli og umfangi þeirra. Í þessum málum hófust rannsóknir á grundvelli afmarkaðra upplýsinga, en síðar kom í ljós umfangsmikil og flókin starfsemi, m.a. í tengdum félögum innan lands og flóknu eignarhaldsskipulagi erlendis. Rannsóknirnar tengdust einnig rannsóknum á öðrum aðilum sem unnið var að samhliða. Slík mál krefjast umfangsmikillar gagnaöflunar, m.a. frá mismunandi lögsögum, þar á meðal aflandssvæðum. Sérstakar aðstæður, svo sem bið eftir gögnum, geta jafnframt haft áhrif. Þá eru á meðal þessara mála dæmi um keðjur tengdra félaga innan lands og í þeim tilvikum getur samhliða rannsókn margra tengdra mála haft áhrif á heildarlengd málsmeðferðar.

     3.      Hversu margir einstaklingar og lögaðilar voru til rannsóknar vegna fleiri en eins máls? Hversu lengi stóð rannsókn yfir samanlagt hjá hverjum og einum? Hvernig lauk þeim rannsóknum?
    Af þeim aðilum sem sættu rannsókn á tímabilinu voru 76 aðilar, einstaklingar eða lögaðilar, til rannsóknar í tveimur málum og 6 aðilar í þremur málum. Með sama hætti og í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er í eftirfarandi sundurliðun, á samanlögðum málsmeðferðartíma þessara rannsókna, horft til skattaðila er sæta endurteknum rannsóknum en ekki sakborninga.

Málmeðferðartími – fjöldi daga Fjöldi einstaklinga og lögaðila í tveimur rannsóknarmálum Fjöldi einstaklinga og lögaðila í þremur rannsóknarmálum
0–100 11
101–200 26
201–300 18
301–400 10
401–500 5 4
501–600 5 1
601–1007 1 1
Samtals fjöldi 76 6

    Samtals er því um að ræða 82 aðila og 170 mál. Á grundvelli niðurstaðna rannsóknanna var 89 þessara mála vísað til lögreglu, 45 til sektarmeðferðar yfirskattanefndar, en í 34 tilvikanna var refsimeðferð lokið með sektarákvörðunum skattrannsóknarstjóra ríkisins eða skattrannsóknarstjóra sem rannsóknareiningar Skattsins. Refsimeðferð tveggja mála var felld niður.