Ferill 636. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1141 — 636. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um uppbyggingu orkumannvirkja og átak til atvinnuuppbyggingar á Norðurlandi vestra.
Flm.: Ólafur Adolfsson, Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hraða uppbyggingu orkumannvirkja við Blönduvirkjun, m.a. tengivirkis við Laxárvatn og rennslisvirkjana á veituleiðum Blönduvirkjunar, og nýta hluta aukinnar framleiðslu til að styrkja atvinnulíf á Norðurlandi vestra.
Greinargerð.
Landsnet hefur ákveðið að leggja nýja 220 kV byggðalínu, Holtavörðuheiðarlínu 3 (HH3), frá Blönduvirkjun í gegnum Húnavatnssýslu upp á Holtavörðuheiði, auk þess að framkvæmdir við Blöndulínu 3, sem liggja mun áfram norður í Skagafjörð, fara á fullt á þessu ári. Að mati flutningsmanna eru tækifæri til staðar til að nýta hluta orku virkjunarinnar í heimabyggð, þá umfram það sem nú er.
Frá gangsetningu Blönduvirkjunar hefur ekki verið unnt að fullnýta mögulegt afl, þar sem ekki hefur verið unnt að flytja um 30 MW á núverandi 132 kV byggðalínu. Með áfangaskiptingu nýrrar 220 kV byggðalínu væri hægt að koma þessari innilokuðu orku strax í nýtingu á nærsvæði virkjunarinnar, m.a. í Húnabyggð. Með nýrri línu myndu enn fremur skapast forsendur fyrir uppbyggingu rennslisvirkjana í veituleiðum Blönduvirkjunar.
Í Húnabyggð er fyrir á fleti, skammt frá tengivirki Landsnets við Laxárvatn, gagnaver starfrækt af Borealis. Fyrir liggur að félagið hyggur á stækkun núverandi gagnavers en uppbygging myndi aukinheldur skapa grundvöll til uppbyggingar fleiri gagnavera, m.a. til nýtingar í gervigreindarþróun. Þá hefur Geimvísindastofnun Íslands hefur verið í samskiptum við sveitarfélög á svæðinu varðandi nýtingu orku til uppbyggingar og rannsókna á svæðinu. Aðstæður á svæðinu eru með besta móti til slíkrar uppbyggingar, enda landnæði nægt og lítil hætta á að náttúruvá geti staðið starfsemi í vegi eða spillt henni.
Fyrsti áfangi 220 kV línu að Laxárvatni myndi tryggja orkuaðgengi fyrir núverandi gagnaver sem og stækkun þess. Samhliða þessu væri hægt að flytja meiri orku suður á eldri byggðalínu. Til að nýta þessi tækifæri er mikilvægt að reisa varanlegt 220 kV tengivirki við Laxárvatn og styrkja tengivirki á iðnaðarsvæðinu við Hnjúka í samvinnu við Húnabyggð.
Þróun íbúafjölda á svæðinu var afar neikvæð á árunum í kringum aldamót. Frá samþykkt ályktunar Alþingis nr. 10/143 hefur dregið mjög úr fólksfækkun. Ljóst er að frekari uppbygging orkumannvirkja á svæðinu og nýting orku í nærumhverfi virkjunarinnar myndi skapa grundvöll til að snúa enn frekar vörn í sókn.