Ferill 652. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1203 — 652. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Í hvaða nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir?
2. Í hvaða stjórnir er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hverja stjórn á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma? Hverjir þeirra eru jafnframt starfsmenn ráðuneyta og í hvaða stjórnum sitja þeir?
Skriflegt svar óskast.