Ferill 662. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1213  —  662. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um torfhúsaarf Íslendinga.

Frá Heiðbrá Ólafsdóttur.


     1.      Hver er fjöldi skráðra torfhúsa hér á landi?
     2.      Hvað hafa mörg skráð torfhús horfið, fallið eða orðið að tóftum vegna skorts á viðhaldi?
     3.      Hvað búa margir einstaklingar hér á landi yfir þeirri sérhæfðu handverksþekkingu sem torfhleðsla krefst?
     4.      Með hvaða hætti ætla stjórnvöld að viðhalda þeirri þekkingu?
     5.      Hver er stefna stjórnvalda er varðar varðveislu torfhúsaarfs Íslendinga sem er einstakur á heimsvísu?


Skriflegt svar óskast.