Ferill 667. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1222  —  667. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um afleysingaþjónustu fyrir bændur.


Flm.: Heiðbrá Ólafsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að hefja vinnu við að koma á laggirnar afleysingaþjónustu fyrir bændur í samstarfi við Bændasamtökin. Með slíkri þjónustu eigi bændur kost á því að fá afleysingu ef upp koma veikindi eða önnur forföll hjá bændum. Ráðherra upplýsi Alþingi um stöðu mála á haustþingi 2026.

Greinargerð.

    Ekkert velferðarfyrirkomulag eða kerfi er til staðar í íslenskum landbúnaði sem tryggir bændum afleysingu ef upp koma veikindi eða önnur forföll hjá bændum. Mikið álag fylgir störfum bænda alla daga ársins og því brýnt að tryggja þeim traustan velferðarramma. Slíkt fyrirkomulag er til staðar í Noregi og Finnlandi. Bændur gætu síðan þess á milli nýtt sér afleysingaþjónustuna gegn greiðslu vegna orlofs- eða fæðingarorlofstöku. Fyrirmynd er að sjúkraafleysingu fyrir bændur því að í COVID-19-faraldrinum var gert samkomulag milli Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einyrkja, Vinnumálastofnunar og Bændasamtaka Íslands um nýtingu fjármagns úr sjóðnum til að fjármagna afleysingar vegna veikinda meðal bænda af völdum sjúkdómsins. Framkvæmd var í höndum Bændasamtakanna og er því þekkingu á viðfangsefninu þegar að finna hjá samtökum bænda. Bændastéttin stendur að mörgu leyti á tímamótum sökum hækkandi meðalaldurs bænda og því mikilvægt að búa starfsgreininni betri starfsaðstæður sem eru aðlaðandi og raunhæfar fyrir nýja kynslóð bænda en bændur eru, líkt og flest fólk, venjulegt fjölskyldufólk með sömu þarfir og aðrar fjölskyldur í landinu.
    Með tillögunni er atvinnuvegaráðherra falið að hefja vinnu við að koma af stað afleysingaþjónustu fyrir bændur í samstarfi við Bændasamtökin. Ráðherra upplýsi Alþingi um stöðu mála á haustþingi 2026.