Ferill 637. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1228  —  637. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um rekstur Þjóðleikhússins.


     1.      Hverjar voru heildartekjur Þjóðleikhússins ár hvert árin 2015–2025?
    Heildartekjur Þjóðleikhússins nú eru 2,3 milljarðar kr. en sjálfsaflafé hefur verið óvenjumikið síðustu tvö ár vegna góðs gengis. Tekjur minnkuðu árin 2020 og 2021 vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, samkomubanns og samkomutakmarkana.

     2.      Hvert var hlutfall ríkisframlags annars vegar og andvirðis seldra aðgöngumiða hins vegar af heildartekjum ár hvert árin 2015–2025?
    Opinber stuðningur til rekstrar Þjóðleikhússins hefur verið á bilinu 68–79% af heildartekjum, fyrir utan árið 2020 þegar lokað var fyrir tekjustrauma vegna samkomubanns vegna heimsfaraldurs. Hlutfall miðasölutekna hefur verið á bilinu 18–27%, að undanskildu árinu 2020 eins og áður hefur verið nefnt. Á síðustu árum (2024–2025) hefur hlutfall miðasölu aukist í 27% vegna mikillar aðsóknar og góðs gengis. Þetta hlutfall milli opinbers stuðnings og sjálfsaflafjár er í takt við það sem gerist í flestum sambærilegum leikhúsum í Vestur-Evrópu en þó er algengara að hlutfall sjálfsaflafjár sé ögn lægra en í tilfelli Þjóðleikhússins.

     3.      Hver var fjöldi seldra aðgöngumiða ár hvert árin 2015–2025?
    Fjöldi seldra miða er breytilegur milli ára. Aðsókn og miðasala í Þjóðleikhúsið hefur verið með mesta móti að undanförnu og fór heildarfjöldi seldra miða upp í 104.902 á árinu 2025. Heildaraðsókn í húsið á árinu 2025 var, þegar með eru taldar skólasýningar á Orra óstöðvandi, skoðunarferðir, námskeið og aðrir viðburðir á vegum leikhússins, rúmlega 121.000 heimsóknir.

     4.      Hver var fjöldi útgefinna frímiða ár hvert árin 2015–2025?
    Fjöldi boðsmiða hefur minnkað verulega á tímabilinu, úr 18.715 árið 2015 í 9.739 árið 2025 sem er um 48% fækkun. Hlutfall boðsmiða af heildarfjölda miða hefur einnig lækkað úr 28% í 9% af heildarmiðafjölda en eins og í flestum leikhúsum er völdum hópum boðið á forsýningar og frumsýningar þar sem gestir eru fjölmiðlafólk, samstarfsfólk í menningargeiranum o.fl. sem tengist starfsemi leikhússins. Jafnframt býður leikhúsið markvisst tilteknum hópum í leikhúsið, aðallega skólahópum og þeim sem síður geta leyft sér að kaupa miða í leikhús.

     5.      Hvernig þróaðist verð aðgöngumiða árin 2015–2025?
    Almennt miðaverð hefur hækkað úr 4.950 kr. árið 2015 í 7.950 kr. árið 2025. Hækkanir hafa verið til að mæta hækkuðu verðlagi. Þjóðleikhúsið kappkostar sem fyrr að halda miðaverði sem lægstu og gera sem flestum kleift að sækja leikhús. Í þeim tilgangi eru boðnar leiðir til að fá miða með lækkuðu miðaverði í gegnum kort af ýmsu tagi, auk þess sem sérstökum hópum og skólahópum eru boðnir miðar með umtalsverðum afslætti.

Þjóðleikhúsið. Yfirlit 2015–2025.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.