Ferill 679. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1264  —  679. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðismálaráðherra um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hvaða almennu læknisfræðilegu viðmið leggur landlæknisembættið til grundvallar við mat á umsóknum um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða?
     2.      Telur ráðherra þau nægjanlega skýr í ljósi mikillar fjölgunar útgefinna stæðiskorta?


Skriflegt svar óskast.