Ferill 681. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1266 — 681. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um nýtingu á útgefnum aflaheimildum.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hvert er magn hlutdeildarsettra sjávardýra, sbr. lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, sem ekki hefur verið veitt á síðustu fimm fiskveiðiárum miðað við útgefnar aflaheimildir?
2. Hver var hlutfallsleg nýting aflaheimilda eftir fiskveiðiárum á sama tímabili?
3. Í hvaða tilvikum og á hvaða fiskveiðiárum á sama tímabili hefur ónýtt hlutfall aflaheimilda numið meira en 5% af heildarúthlutun?
Þess er óskað að í svari við fyrirspurninni verði ekki bætt við tegundatilfærslum eða tilfærslum á milli ára.
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.