Ferill 682. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1278  —  682. mál.




Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar


um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Landhelgisgæslu Íslands.


    Með bréfi, dags. 11. febrúar 2026, sendi forseti Alþingis eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Landhelgisgæslu Íslands til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er gerð grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um Landhelgisgæslu Íslands frá 2022. Nefndin fjallaði um þá skýrslu á 152. löggjafarþingi og veitti álit um hana ( þskj. 736, 514. mál).
    Nefndin hefur fjallað um eftirfylgniskýrsluna á fundum sínum og fengið til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, dómsmálaráðuneyti og Landhelgisgæslu Íslands.

Niðurstöður eftirfylgniskýrslu.
    Að mati Ríkisendurskoðunar hefur einungis verið komið fyllilega til móts við eina af þeim níu tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun lagði fram í skýrslu um Landhelgisgæslu Íslands árið 2022. Sú tillaga varðaði fyrirkomulag varnartengdra verkefna. Landhelgisgæslan og dómsmálaráðuneyti hafi þó unnið að úrbótum varðandi þá annmarka sem gerð var grein fyrir í skýrslunni.

Umfjöllun nefndarinnar.
Áætlanagerð og tækjakostur.
    Ein tillaga Ríkisendurskoðunar til úrbóta sneri að mikilvægi þess að teknar væru skýrar og raunhæfar ákvarðanir um verkefni, viðbúnaðargetu og tækjakost Landhelgisgæslu Íslands. Þá varðaði önnur tillaga til úrbóta að festa þyrfti í sessi langtímafjárfestingaráætlun fyrir tækjakost stofnunarinnar. Lagði Ríkisendurskoðun til að skilgreina þyrfti með afdráttarlausum og hlutlægum hætti öryggis- og þjónustustig Landhelgisgæslu Íslands og marka viðbúnaðargetu hennar bæði skýr og raunhæf viðmið varðandi mannafla og tækjakost. Í því skyni þyrfti dómsmálaráðherra að setja reglugerð um framkvæmd lögbundinna verkefna stofnunarinnar, ljúka við gerð landhelgisgæsluáætlunar og nýta ramma laga um opinber fjármál til árangursmiðaðrar stefnumörkunar og eftirlits með starfseminni.
    Í eftirfylgniskýrslunni og fyrir nefndinni kom fram í máli ráðuneytisins að erfið fjárhagsstaða Landhelgisgæslunnar hefði staðið stefnumótun fyrir þrifum. Fjárframlög hefðu ekki dugað til að standa undir almennum rekstri stofnunarinnar og því hefði ráðuneytið lagt áherslu á að mæta áskorunum í rekstri með tímabundnum fjárframlögum. Nú þegar Landhelgisgæslan hafi fengið aukið fjármagn til styrkingar á starfseminni hafi ráðuneytið hafið vinnu við mótun heildarstefnu um málefni stofnunarinnar. Gagnaöflun hafi hafist í september árið 2025 og efnisleg vinna hófst í samráði við Landhelgisgæsluna í upphafi árs 2026. Stefnt sé að því að áætlunin liggi fyrir síðar á árinu 2026 og höfðu aðilar væntingar um að með henni væri mörgum tillögum til úrbóta mætt. Nefndin leggur áherslu á að ráðuneytið vinni ötullega að gerð landhelgisgæsluáætlunar sem byggist á skýrri markmiðasetningu og á grundvelli hennar verði lögð fram langtímafjárfestingaráætlun fyrir tækjakost stofnunarinnar.

Bætt eftirlit með landhelgi Íslands.
    Í skýrslu Ríkisendurskoðunar árið 2022 voru hlutaðeigandi stjórnvöld hvött til þess að bæta eftirlit með íslenskri landhelgi, til að mynda með aukinni viðveru eftirlits- og björgunarflugvélarinnar TF-SIF. Var það mat Ríkisendurskoðunar að það lægi beinast við að dómsmálaráðuneyti og Landhelgisgæsla Íslands leituðu allra leiða til að auka viðveru og nýtingu TF-SIF á íslensku hafsvæði, en flugvélin hafði verið notuð við verkefni á vegum Landamærastofnunar Evrópu (Frontex) á grundvelli skuldbindinga Íslands.
    Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að TF-SIF sinni ekki frekari verkefnum fyrir Frontex og eykst eftirlits- og viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar að því leyti að flugvélin verður í auknum mæli til taks hér á landi. Aftur á móti er óljóst hve mikið svigrúm verður til að auka reglubundið eftirlit með vélinni þar sem ekki er fyrirséð að nýrra tekna verði aflað til að standa straum af kostnaði.
    Að mati Ríkisendurskoðunar er tilhögun eftirlits með íslenskri efnahagslögsögu í meginatriðum óbreytt frá því sem var 2022. Forsendur fyrir útleigu TF-SIF til verkefna á vegum Frontex hafa tekið stakkaskiptum vegna tækniþróunar en þrátt fyrir aukna viðveru vélarinnar hér á landi er ekki fyrirséð að rekstrarlegt svigrúm sé til staðar til að auka reglulegt eftirlit. Ríkisendurskoðun bendir á að líkt og gildi um aðra starfsemi Landhelgisgæslunnar skortir á að fyrir liggi skýr stefna um hver geta stofnunarinnar skuli vera og að henni sé fylgt eftir með markvissum hætti. Að mati nefndarinnar er mikilvægt að landhelgisgæsluáætlun taki á framangreindum atriðum.

Landhelgissjóður Íslands.
    Ein af tillögum Ríkisendurskoðunar var að dómsmálaráðuneyti myndi skoða að leggja niður Landhelgissjóð Íslands eða sameina hann annarri starfsemi Landhelgisgæslu Íslands. Sjóðurinn er starfræktur á grundvelli 27. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006. Í sjóðinn rennur sektarfé og andvirði upptækra verðmæta vegna brota gegn fiskveiðilöggjöfinni og hlutur Landhelgisgæslunnar af björgunarlaunum.
    Í áliti nefndarinnar um skýrsluna á 152. löggjafarþingi kom fram að dómsmálaráðuneyti og Landhelgisgæslan gerðu ekki athugasemdir við þessa tillögu. Tók nefndin undir með tillögu Ríkisendurskoðunar um að taka tilhögun Landhelgissjóðs Íslands til endurskoðunar.
    Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að Landhelgissjóður Íslands sé enn starfræktur. Landhelgisgæslan ítrekar óbreytta afstöðu sína um málið en bendir á að það sé í höndum dómsmálaráðuneytis að taka ákvörðun um málið. Í svörum sínum til Ríkisendurskoðunar lagði dómsmálaráðuneyti áherslu á að niðurlagning sjóðsins kalli á breytingu á lögum um Landhelgisgæslu Íslands. Það sé enn til skoðunar að sameina sjóðinn starfsemi stofnunarinnar en endanleg ákvörðun verði tekin þegar áðurnefnd stefnumörkun um málefni Landhelgisgæslunnar liggur fyrir. Að mati nefndarinnar er mikilvægt að ráðuneytið taki ákvörðun um Landhelgissjóð Íslands í samræmi við sjónarmið Ríkisendurskoðunar þegar stefnumörkun málaflokksins liggur fyrir.

Olíukaup í Færeyjum.
    Í skýrslunni 2022 kemur fram að Landhelgisgæsla Íslands hafi undanfarin ár keypt olíu á varðskipin í Færeyjum en innkaupsverð olíu hafi verið lægra þar en hér á landi þar sem ekki hafi þurft að greiða virðisaukaskatt af olíunni í Færeyjum. Beindi Ríkisendurskoðun þeirri tillögu til úrbóta að olíukaupum í Færeyjum yrði hætt.
    Eftir útgáfu skýrslunnar í janúar 2022 var tekið upp bann við olíutöku í Færeyjum. Í minnisblaði forstjóra Landhelgisgæslu Íslands til ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis, dags. 4. apríl 2022, var bent á að bann við olíutöku í Færeyjum væri meðal þeirra þátta sem fælu í sér forsendubrest fyrir rekstraráætlun stofnunarinnar. Samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar var umræddu banni aflétt. Við eftirfylgni Ríkisendurskoðunar benti Landhelgisgæsla Íslands á að eðli starfseminnar væri með þeim hætti að erfitt væri að einskorða olíutöku við Íslandsstrendur.
    Í áliti nefndarinnar árið 2022 bendir hún á að Landhelgisgæsla Íslands sinni ýmsum verkefnum suðaustur af landinu og haldi æfingar með varðskipum dönsku Landhelgisgæslunnar. Stutt væri úr suðausturhluta íslenskrar efnahagslögsögu til Færeyja og því væru ferðir til olíutöku í Færeyjum nýttar til eftirlits á því hafsvæði. Nefndin beindi því til dómsmálaráðuneytis, í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti, að leita leiða til að tryggja að kaup Landhelgisgæslu Íslands á olíu hér á landi hefðu ekki neikvæð áhrif á úthaldsdaga varðskipanna. Ríkisendurskoðun tekur undir það að kaup Landhelgisgæslu Íslands á olíu erlendis kunni að reynast skynsamlegur kostur þegar og ef verkefni varðskipa gefa tilefni og tækifæri til.

Varnarmál.
    Í fimmtu tillögu sinni til úrbóta árið 2022 brýndi Ríkisendurskoðun fyrir hlutaðeigandi stjórnvöldum að huga að fyrirkomulagi varnartengdra verkefna. Í skýrslunni frá 2022 var fjallað um samning um framkvæmd varnartengdra rekstrarverkefna milli utanríkisráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands sem var undirritaður árið 2021. Að mati Ríkisendurskoðunar var ekki komin næg reynsla á samninginn og að fyrirkomulagið væri óvanalegt í samhengi ríkisreksturs.
    Við eftirfylgni Ríkisendurskoðunar og fyrir nefndinni kom fram að Landhelgisgæsla Íslands, utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti væru heilt yfir jákvæð um fyrirkomulag og framkvæmd varnartengdra verkefna. Að mati utanríkisráðuneytis hefði samningurinn tryggt gott aðhald og eftirlit með framkvæmdinni og að samstarfið hefði verið snurðulaust. Þá kom fram að engar veigamiklar breytingar væru fyrirhugaðar á samningnum um framkvæmd varnartengdra verkefna. Nú stæði yfir vinna við endurnýjun samningsins og lögð væri áhersla á að ljúka henni hratt og örugglega.

Loftför nýtt í þágu æðstu stjórnenda ríkisins.
    Ein af tillögum til úrbóta frá 2022 var að setja þyrfti skýrar viðmiðunarreglur um afnot æðstu stjórnenda ríkisins af loftförum í eigu eða leigu stofnana ríkisins. Í skýrslunni kom fram að Ríkisendurskoðun hefði kannað hversu oft loftför Landhelgisgæslu Íslands hefðu verið nýtt til að ferja æðstu stjórnendur ríkisins á árunum 2018–2020. Fram kom að í tíu flugverkefnum stofnunarinnar hafi ráðamenn verið farþegar.
    Það var mat nefndarinnar að það kynni að vera réttlætanlegt að loftför og skip Landhelgisgæslu Íslands væru nýtt í opinberum erindagjörðum æðstu stjórnenda ríkisins. Ætti það við um flutninga vegna óvæntra atburða eða formlegra athafna. Nefndin tók þó undir með Ríkisendurskoðun að notkun þeirra í einkaerindum væri alvarlega athugunarverð. Lagði nefndin ríka áherslu á að settar yrðu reglur um afnot æðstu stjórnenda ríkisins af loftförum og skipum.
    Hinn 1. apríl 2026 var birt í Stjórnartíðindum reglugerð nr. 322/2026, um flug og siglingar Landhelgisgæslu Íslands utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna. Markmið reglnanna væru að tryggja gagnsæi, ábyrgð og skýra umgjörð um slíka nýtingu. Nefndin lýsir ánægju sinni með að brugðist hafi verið við þessari tillögu til úrbóta en það vekur þó athygli að það hafi tekið nokkurn tíma að gefa út reglurnar.

Föst viðvera þyrlu á Akureyri.
    Við umfjöllun eftirfylgniskýrslunnar fjallaði nefndin sérstaklega um mögulega fjórðu þyrlu Landhelgisgæslu Íslands sem væri með fasta starfsstöð á Akureyri. Að mati ráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar yrði það mikill styrkur við lofthelgisgæslu. Nefndin kallaði því eftir mati á þeim kostnaði sem fylgdi því að staðsetja varanlega fjórðu björgunarþyrlu á Akureyri. Hyggst nefndin fylgja því máli eftir.

    Sigmundur Ernir Rúnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 29. maí 2026.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Jón Gnarr. Árni Helgason.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Eiríkur Björn Björgvinsson. Guðmundur Ingi Kristinsson.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þorgrímur Sigmundsson.