Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1279 — 683. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um skatttekjur, bótagreiðslur o.fl. eftir ríkisfangi, aldurshópum og kyni.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hver er árlegur heildarfjöldi þeirra sem skiluðu skattframtali fyrir tekjuárin 2022–2025, sundurliðað eftir aldurshópunum 18–66 ára og 67 ára og eldri, miðað við aldur í lok hvers árs, ríkisfangi og kyni?
2. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal og miðgildi stofns til útreiknings tekjuskatts og útsvars fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
3. Hver er árleg meðalupphæð félagslegrar aðstoðar og annarra styrkja og bóta frá sveitarfélögum fyrir árin 2022–2025, sundurliðuð eftir framangreindum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
4. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi, þ.e. miðgildi þeirra upphæða sem eru yfir núlli, tekjuskatts og útsvars fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrgreindum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
5. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi barnabóta fyrir árin 2019–2024, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
6. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi stofns til útreiknings fjármagnstekjuskatts fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
7. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi útvarpsgjalds fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
8. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi ákvarðaðra vaxtabóta fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
9. Hver er árleg heildarupphæð, meðaltal, miðgildi og skilyrt miðgildi greiddra húsnæðisbóta fyrir árin 2022–2025, sundurliðað eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni?
10. Hver er árlegur fjöldi einstaklinga, sundurliðaður eftir fyrrnefndum aldurshópum, ríkisfangi og kyni árin 2022–2025:
a. með stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars yfir 0 kr.,
b. með tekjuskatt og útsvar yfir 0 kr.,
c. með barnabætur yfir 0 kr., með stofn til útreiknings fjármagnstekjuskatts yfir 0 kr.,
d. með útvarpsgjald yfir 0 kr.,
e. með ákvarðaðar vaxtabætur yfir 0 kr.,
f. með húsnæðisbætur yfir 0 kr.?
Skriflegt svar óskast.