Ferill 560. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1282  —  560. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig stendur vinna stjórnvalda við fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, sem afgreidd var á 108. Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf í júní 2019? Hvenær má búast við að samþykktin verði fullgild?

    Í tengslum við fyrirhugaða fullgildingu hér á landi á samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, stendur nú yfir vinna í vinnuhópi, sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað, í samráði við samtök aðila á vinnumarkaði sem og innviðaráðuneyti og Samgöngustofu vegna þess hluta samþykktarinnar sem fellur undir málefnasvið innviðaráðuneytisins.
    Hlutverk fyrrnefnds vinnuhóps er að greina efni umræddrar samþykktar og leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á löggjöf hér á landi fullgilding samþykktarinnar hefur í för með sér. Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn ljúki störfum eigi síðar en í lok árs 2026. Jafnframt er gert ráð fyrir að í kjölfar þess að vinnuhópurinn lýkur störfum verði unnt að ganga frá fullgildingu umræddrar samþykktar hér á landi, m.a. með því að leggja fram á Alþingi frumvarp eða frumvörp þar sem lagðar verða til viðeigandi lagabreytingar, eftir því sem við á.