Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1301  —  694. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölmennasta lögheimili landsins.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Getur erlendur ríkisborgari sem ekki hefur gilt dvalarleyfi á Íslandi verið með skráð lögheimili á Íslandi á sama tíma?
     2.      Hver var fjöldi skráðra aðila á fjölmennasta lögheimili landsins ár hvert á tímabilinu 2010–2025 að stofnunum frátöldum?


Skriflegt svar óskast.