Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1316 — 557. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um búvörusamninga.
1. Hver var kostnaður við aðkeypta ráðgjöf eða aðra þjónustu vegna endurskoðunar búvörusamninga frá 1. janúar 2022 til 1. febrúar 2026? Óskað er eftir upplýsingum um heildarkostnað við innlenda og erlenda ráðgjöf og aðra þjónustu, sundurliðað eftir aðilum sem þjónustan var keypt af og starfsemi þeirra sem selja þjónustuna.
Á tímabilinu 1. janúar 2022 til 1. febrúar 2026 hefur heildarkostnaður við innlenda og erlenda ráðgjöf og aðra þjónustu sem tengist endurskoðun búvörusamninga verið 2.486.500 kr. og skiptist með eftirfarandi hætti:
| Aðili | Starfsemi | Heildarkostnaður |
| Torfi Jóhannesson | ráðgjöf | 580.000 kr. |
| Maskína | rannsóknaraðili | 1.906.465 kr. |
2. Hvað fólst í slíkri ráðgjöf/þjónustu á framangreindu tímabili?
Ráðgjöfin og þjónustan á tímabilinu fól m.a. í sér að taka saman upplýsingar um stuðningskerfi landbúnaðar, skýrsluskrif og rannsóknir:
1. Stuðningskerfi íslensks landbúnaðar: Markmið og leiðir. Torfi Jóhannesson, Jóhanna Gísladóttir og Þóroddur Sveinsson. (2024)
2. Þátttaka í könnun Maskínu í nóvember og desember 2024 sem lögð var fram fyrir félagsmenn Bændasamtaka Íslands. (2024)
3. Vefumræðuborð 26.–28. maí 2025 — Maskína. Viðhorf bænda til stuðningskerfis í landbúnaði, hugmyndir þeirra til framtíðar og sú reynsla sem þeir hafa af því. (2025)
3. Var einhver utanaðkomandi þjónusta/ráðgjöf þegin án greiðslu á fyrrgreindu tímabili? Ef svo er, frá hvaða aðilum?
Ekki var þegin utanaðkomandi þjónusta eða ráðgjöf án greiðslu á tímabilinu 1. janúar 2022 til 1. febrúar 2026.
4. Hversu margir fundir voru haldnir á fyrrgreindu tímabili í tengslum við endurskoðun búvörusamninga, hvar voru þeir haldnir, hvenær og hverjir sátu fundina?
1. 19. ágúst 2025. Fundurinn fór fram í ráðuneytinu og hann sátu atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, starfsmenn ráðuneytisins og fulltrúar frá Bændasamtökum Íslands: Trausti Hjálmarsson, Margrét Ágústa Sigurðardóttir, Herdís Magna Gunnarsdóttir, Steinþór Logi Arnarsson og Hilmar Vilberg Gylfason.
2. 23. september 2025. Fundurinn fór fram hjá Bændasamtökum Íslands og hann sátu starfsmenn ráðuneytisins og fulltrúar frá Bændasamtökum Íslands: Trausti Hjálmarsson, Margrét Ágústa Sigurðardóttir, Herdís Magna Gunnarsdóttir, Steinþór Logi Arnarsson, Harpa Ólafsdóttir og Hilmar Vilberg Gylfason.
3. 29. október 2025. Fundurinn fór fram í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og hann sátu atvinnuvegaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og fulltrúar Bændasamtaka Íslands: Trausti Hjálmarsson og Margrét Ágústa Sigurðardóttir.