Ferill 700. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1321 — 700. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hvernig var staðið að vali á höfundum skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum?
2. Hverjir fengu að koma athugasemdum til höfunda við gerð skýrslunnar?
3. Hvaða athugasemdir, ef einhverjar, bárust skýrsluhöfundum? Svar óskast sundurliðað eftir umsagnaraðilum.
4. Hver var kostnaðurinn við gerð skýrslunnar?
Skriflegt svar óskast.