Ferill 618. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1325 — 618. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um afkastagetu Sæbrautar.
1. Hvað eykst afkastageta Sæbrautar mikið við það að taka niður þrenn umferðarljós líkt og gert er ráð fyrir í forsendum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins?
Sæbrautarstokkur verður um 850 metra langur vegstokkur fyrir 2+2 akreina stofnveg, auk öryggissvæða, aðreina og fráreina við Kleppsmýrarveg og við mislæg gatnamót við Vesturlandsveg/Reykjanesbraut. Stutt er á milli þessara gatnamóta og því tengjast að- og fráreinar saman inni í stokknum og mun þversnið stokksins að jafnaði samsvara þremur akreinum í hvora átt (3+3 akreinar).
Sæbraut er í dag 2+2 akreina stofnvegur auk beygjuakreina við gatnamót. Tvenn ljósastýrð gatnamót eru á kaflanum sem um ræðir. Meginstraumar umferðar á Sæbraut munu með tilkomu stokksins aka undir bæði gatnamótin, í flæði sem er óháð umferðarljósum.
Áætlað er að afkastageta (ökutæki á klst.) Sæbrautar á þessum kafla rúmlega tvöfaldist frá
því sem nú er með tilkomu stokksins.
2. Hvað er gert ráð fyrir mikilli umferð um borgarlínu á Sæbraut 2040 og hver verður afkastageta Sæbrautar 2040?
Yfir suðurenda Sæbrautarstokks munu sérakreinar fyrir almenningssamgöngur þvera stokkinn og liggja um nýja skiptistöð þar sem sex leiðir munu fara um. 78 vagnar á klst. munu aka í báðar áttir yfir Sæbrautarstokk þegar mest lætur miðað við fyrirliggjandi áætlanir. Þetta verður því ein stærsta stöð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og fyrirliggjandi spár benda til að um 33 þús. manns á dag, yfir 5 þús. manns á klst., muni fara um stöðina og sérakreinar Borgarlínu yfir Sæbrautarstokk árið 2040.
Ársdagsumferð um Sæbraut í dag er um 29 þús. ökutæki á sólarhring. Gert er ráð fyrir að ársdagsumferð um Sæbrautarstokk árið 2040 verði um 42 þús. ökutæki á sólarhring. Í þeirri framtíðarspá er gert ráð fyrir að Sundabraut verði komin til framkvæmda, sem mun hafa veruleg áhrif á ferðamynstur umferðar um Sæbraut. Áætlað er að afkastageta Sæbrautar í stokki meira en tvöfaldist frá því sem nú er og verði um 7.500 ökutæki/klst. Spár benda til að umferð um Sæbrautarstokk á annatímum árið 2040 verði um 5.000 ökutæki/klst.