Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1346 — 580. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um barnavernd.
Frá meiri hluta velferðarnefndar (KÁB, GMJ, KÞS, RagnaS, SandrS).
1. Við 3. mgr. 1. gr. bætist: og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
2. Við 2. mgr. 4. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fatlað barn skal njóta réttinda samkvæmt lögum þessum til fulls og jafns við önnur börn.
3. Við 3. mgr. 8. gr. bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Stjórnvöld og stofnanir geta ákveðið verklag um hvernig tilkynningu er komið á framfæri fyrir hönd fagfólks sem þar starfar í nafni viðkomandi stjórnvalds eða stofnunar. Fyrirkomulagið skal vera til þess fallið að tilkynningu sé komið á framfæri eins fljótt og unnt er.
4. Við 12. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „3. mgr. 68. gr.“ í 1. mgr. komi: 4. mgr. 68. gr.
b. Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: sbr. þó 7. mgr. 56. gr.
5. Í stað 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðið skal í það minnsta vera skipað einum félagsráðgjafa, einum lögfræðingi og einum sálfræðingi. Þá skal tryggja að innan ráðsins sé fyrir hendi þekking á meðferð barnaverndarmála, málefnum fatlaðra barna og heilbrigðisþjónustu barna.
6. Við 2. mgr. 18. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef vafi er um ábyrgð á meðan leyst er úr slíkum ágreiningi fer barnaverndarþjónusta í umdæmi þar sem barn er statt með mál þess.
7. Við 3. mgr. 25. gr. bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þó skal ávallt samþætta þjónustu óháð afstöðu foreldra þegar barnaverndarþjónusta tekur við umsjá eða forsjá barns. Að öðru leyti fer um samþættingu samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
8. 1. málsl. 1. mgr. 34. gr. orðist svo: Barnaverndarþjónusta, í samráði við Barna- og fjölskyldustofu þegar við á, velur vistunarúrræði sem best er talið henta þörfum barns hverju sinni.
9. Á eftir 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þó er ekki heimilt að framlengja vistun í vistunarúrræði skv. c-lið 1. mgr. 28. gr. Á sömu forsendum er í undantekningartilvikum heimilt að ákveða að stuðningsúrræði barnaverndar séu framlengd fram yfir 18 ára aldur.
10. Við 2. mgr. 43. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að krefjast þess að foreldrar eða aðrir nákomnir undirgangist líkamsleit og leit í farangri áður en umgengni við barn sem er vistað í vistunarúrræði fer fram, ef slíkt telst nauðsynlegt til að tryggja öryggi og velferð barnsins eða annarra á dvalarstaðnum.
11. Við 2. málsl. 2. mgr. 44. gr. bætist: eftir því sem nauðsynlegt er til að tryggja velferð þess.
12. Við 50. gr.
a. 6. mgr. orðist svo:
Heimilt er að óska eftir því að barn gefi öndunar-, munnvatns-, þvag- eða blóðsýni ef grunur leikur á að það hafi neytt áfengis eða annarra vímuefna. Taka slíkra lífsýna skal ávallt framkvæmd af þar til bærum starfsmanni með viðeigandi þekkingu og hæfni. Ávallt skal notast við öruggan og viðurkenndan búnað við framkvæmdina. Blóðsýnataka skal einungis framkvæmd af þar til bærum heilbrigðisstarfsmanni. Heimilt er að fylgjast með barni gefa lífsýni en um framkvæmd þess gildir 3. mgr. eftir því sem við á. Óheimilt er að þvinga barn með líkamlegum tökum til að gefa lífsýni.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Stafi nauðsyn eftirlits af því að barn sé undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna skal tryggja barninu nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
13. Á eftir 3. mgr. 54. gr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Barn sem sætir ráðstöfun samkvæmt grein þessari skal án tafar og daglega á meðan ráðstöfun varir njóta heimsóknar heilbrigðisstarfsmanns sem er til þess bær að meta líkamlegt og andlegt heilbrigði og tryggja barninu viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
14. Við 56. gr.
a. 3. mgr. orðist svo:
Ráðstafanir skv. 6. mgr. 50. gr., 54. og 55. gr. skulu svo fljótt sem kostur er tilkynntar foreldri, barnaverndarþjónustu og þjónustuveitendum eftir því sem við á, að jafnaði innan fjögurra klukkustunda en ávallt innan sólarhrings frá því að ráðstöfun hófst. Um ákvarðanatöku um beitingu þvingunar fer að öðru leyti skv. X. kafla.
b. 2. málsl. 6. mgr. falli brott.
c. 7. mgr. orðist svo:
Aðrar ákvarðanir á grundvelli 49.–55. gr. eru kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þegar úrskurðarnefndinni berst kæra á ákvörðun á grundvelli 53., 54. og 55. gr. sem er yfirstandandi skal nefndin kveða upp úrskurð innan fjögurra virkra daga frá því að kæra barst, ella fellur hin kærða ákvörðun úr gildi. Upphafsdagur frestsins telst vera næsti dagur á eftir þeim degi þegar kæra berst nefndinni. Úrskurðarnefndin skal þó ávallt leitast við að kveða upp úrskurð eins fljótt og auðið er.
d. Í stað orðanna „tilkynningar og heilsufarsmat“ í 8. mgr. komi: og tilkynningar.
15. Við 1. mgr. 60. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Barna- og fjölskyldustofa gerir fósturforeldrum og barnaverndarþjónustu viðvart með hæfilegum fyrirvara áður en leyfi til að taka börn í fóstur rennur út.
16. Á eftir orðinu „umgengni“ í 2. málsl. 1. mgr. 62. gr. komi: við barn í fóstri.
17. Á eftir 2. mgr. 68. gr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Ef barnaverndarþjónustu berast upplýsingar samkvæmt þessari grein sem kunna að hafa áhrif á skilyrði leyfis til að taka barn í fóstur skal þjónustan upplýsa Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála um það.
18. 82. gr. orðist svo:
Þegar héraðsdómara hefur borist mál samkvæmt þessari grein ákveður hann stað og stund til þinghalds án tafar og tilkynnir aðilum um það með sannanlegum hætti.
Vistunarúrræði skal láta dómara í té þau gögn sem ákvörðunin er reist á, ásamt athugasemdum við hana ef því er að skipta. Þegar sérstaklega stendur á er dómara heimilt að veita fresti til aukinnar gagnaöflunar en taka skal mál aftur fyrir svo fljótt sem unnt er.
Matsgerðar verður ekki aflað í málum samkvæmt þessari grein.
Þegar öflun gagna er lokið í máli þar sem vörnum er haldið uppi skal það sótt og varið munnlega svo fljótt sem unnt er.
Dómari skal svo fljótt sem unnt er kveða upp úrskurð í máli um hvort takmörkun á ferðafrelsi skuli standa eða hún felld úr gildi.
19. Við 2. málsl. 1. mgr. 87. gr. bætist: ef það er talið nauðsynlegt til að tryggja meðferð mála samkvæmt lögum þessum.
20. Í stað orðanna „innra eftirlit“ í 2. málsl. 97. gr. komi: ábendingar.
21. 103. gr. orðist svo:
Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.
22. Í stað orðanna „læknir eða annar“ í 1. málsl. 2. tölul. b-liðar 12. tölul. 112. gr. komi: viðkomandi.
23. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ráðherra skal tólf mánuðum frá gildistöku laga þessara leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd þeirra. Í skýrslunni skal fjalla um framvindu málaflokksins og hvort tilefni sé til að bæta umgjörð hans, svo sem með breytingum á lögum og reglugerðum. Sérstaklega skal fjalla um framkvæmd ákvæða VIII. kafla um fóstur, um eftirlit barnaverndaryfirvalda með málaflokknum, einkum er varðar fóstur og vistunarúrræði á vegum barnaverndar skv. VI og VIII. kafla, og um framkvæmd og beitingu þvingunar í vistunarúrræðum skv. VII. kafla.