Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 135  —  97. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um aðgang að sjúkraskrám.


     1.      Hvaða brotalamir urðu þess valdandi að utanaðkomandi aðilar höfðu aðgang að sjúkraskrám Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins?
    Samkvæmt 20. gr. laga um sjúkraskrár er heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna heimilt, með leyfi ráðherra, að færa og varðveita sjúkraskrár sjúklinga í sameiginlegu rafrænu sjúkraskrárkerfi. Það leyfi má eingöngu veita ef sýnt hefur verið fram á að sameiginlegt sjúkraskrárkerfi sé til þess fallið að tryggja betur öryggi sjúklinga við meðferð. Einnig getur ráðuneytið bundið leyfið hverjum þeim skilyrðum sem það telur nauðsynleg til að tryggja vandaða færslu sjúkraskráa, örugga varðveislu þeirra og vernd sjúkraskrárupplýsinga.
    Hvað varðar þá samninga um samnýtingu sjúkraskrárkerfa sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins gerði við utanaðkomandi aðila liggur fyrir að Heilsugæslan lét hjá líða að annars vegar afla leyfis heilbrigðisráðuneytisins fyrir samnýtingunni og hins vegar staðfestingar Persónuverndar á því að fyrirhuguð samnýting sjúkraskrárkerfa uppfylli ákvæði laga um sjúkraskrár, laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, auk reglugerðar um sjúkraskrár, eins og kveðið er á um í lögum um sjúkraskrár.

     2.      Hyggst ráðherra grípa til ráðstafana til að hefta aðgang utanaðkomandi aðila að sjúkraskrám? Ef svo er, hvaða?
    Með vísan til framangreinds er í lögum um sjúkraskrár kveðið á um tvíhliða samþykktarferli umsókna, með aðkomu annars vegar ráðuneytisins og hins vegar Persónuverndar, til að tryggja að leyfi sé ekki veitt fyrir rekstri sameiginlegra sjúkraskrárkerfa, nema sýnt hafi verið fram á að sá rekstur bæti öryggi sjúklinga og viðkvæmra sjúkraskrárupplýsinga. Ráðuneytið hefur verið upplýst um að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur uppfært verklag sitt á þessu sviði til að hindra að slíkt geti gerst aftur. Með hliðsjón af því telur ráðuneytið ekki ástæðu til að ráðast í lagabreytingar hvað þetta varðar þar sem skilyrði laganna fyrir rekstri sameiginlegra sjúkraskrárkerfa eru skýr.