Ferill 529. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1351  —  529. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um lagareldi.

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (LRM, Eás, EBB, IngÞ, KÞS, SigurjÞ).

     1.      Við 3. gr.
                  a.      Við 21. tölul. bætist: á landi.
                  b.      Á eftir orðinu „sjó“ í 34. tölul. komi: eða þar sem hluti framleiðslunnar fer fram í sjó.
     2.      Við 4. mgr. 5. gr. bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Að fengnu samþykki Matvælastofnunar er heimilt að færa leyfilegan lífmassa milli smitvarnasvæða, enda rúmist slík tilfærsla innan þeirra marka sem kveðið er á um í umhverfismati viðkomandi framkvæmdar. Nýttur leyfilegur lífmassi smitvarnasvæða skal aldrei vera hærri en hámarkslífmassi viðkomandi vatnshlots eða annars afmarkaðs hafsvæðis.
     3.      Á eftir orðinu „Hafrannsóknastofnun“ í 3. málsl. 2. mgr. 7. gr. bætist: að undangengnu samráði.
     4.      2. málsl. 2. mgr. 12. gr. falli brott.
     5.      Við 31. gr.
                  a.      Í stað orðanna „hvorki tilgreina hámarkslífmassa smitvarnasvæðis né“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: ekki tilgreina.
                  b.      Orðin „að hámarkslífmassa viðkomandi smitvarnasvæðis“ í 5. mgr. falli brott.
                  c.      Á eftir orðinu „mannvirki“ síðara sinni í 2. málsl. 4. mgr. komi: og lögum sem gilda um leiðarmerki og öryggi siglinga.
     6.      Við 1. mgr. 33. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Séu fleiri en einn rekstrarleyfishafi á svæði þar sem hækkun verður á burðarþolsmati skal heimild til umsóknar skv. 1. málsl. skiptast hlutfallslega miðað við leyfilegan lífmassa.
     7.      Við 34. gr.
                  a.      Í stað orðsins „þremur“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: sex.
                  b.      Á eftir 4. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Niðurstaða Matvælastofnunar um endurnýjun rekstrarleyfis skal liggja fyrir eigi síðar en fjórum árum áður en leyfi rennur út.
     8.      Við 36. gr.
                  a.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Samþykkis Matvælastofnunar er þörf fyrir þann hluta viðbragðsáætlunar er varðar mótvægisaðgerðir skv. 45. gr.
                  b.      Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skal þar m.a. kveðið á um hvaða kröfur séu gerðar til þess hluta viðbragðsáætlunar er varðar mótvægisaðgerðir skv. 54. gr.
     9.      Við 41. gr.
                  a.      Í stað orðanna „Sé laxahlutur ekki nýttur að fullu“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: Séu 90% laxahlutar ekki nýtt að fullu.
                  b.      Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ í 4. málsl. 1. mgr. komi: 3. mgr.
                  c.      Á eftir 2. málsl. 3. mgr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Matvælastofnun skal við afgreiðslu beiðna um framsal eða leigu laxahlutar meta hvort framsalshafi eða leigutaki hafi yfir að ráða nægilegum leyfilegum lífmassa til að geta nýtt viðkomandi laxahluti.
     10.      Orðin „við heildarlaxamagn sem þannig verður til“ í 42. gr. falli brott.
     11.      Fyrirsögn 43. gr. orðist svo: Strok úr sjókvíaeldi.
     12.      Við 44. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Rekstrarleyfishafi skal, auk ákvæða 47. gr., án tafar upplýsa Matvælastofnun um ástæður stroks, umfang og greina frá öllum þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til og eiga að koma í veg fyrir frekara strok sem og til hvaða aðgerða verði gripið svo að slíkt strok endurtaki sig ekki.
     13.      Við 45. gr.
                  a.      Í stað orðsins „Viðbragðsáætlun“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: Í viðbragðsáætlun.
                  b.      Í stað orðsins „Landeigendum“ í 1. málsl. 4. mgr. komi: Að undangengnu samráði við landeigendur.
     14.      Í stað orðsins „helst“ í 1. málsl. 1. mgr. 53. gr. komi: er.
     15.      Við 54. gr.
                  a.      Í stað orðanna „skulu allir kynþroska eldislaxar fjarlægðir úr þeirri sjókví“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: skal rekstrarleyfishafi tafarlaust grípa til mótvægisaðgerða til að lágmarka hættu á stroki í samræmi við viðbragðsáætlun, sbr. 36. gr.
                  b.      2. málsl. 3. mgr. orðist svo: Matvælastofnun getur gert kröfu um að allir kynþroska eldislaxar séu fjarlægðir úr sjókví þegar hlutfall kynþroska eldislax í sjókví fer yfir þau hlutföll sem tilgreind eru í 2. mgr. og önnur vægari úrræði koma að mati stofnunarinnar ekki til greina.
     16.      Í stað orðsins „hámarkslífmassa“ fyrra sinni í 1. málsl. 1. mgr. 56. gr. komi: leyfilegum lífmassa.
     17.      Í stað orðanna „eða öðrum aðilum, opinberum eða einkaaðilum, innheimtu þess“ í 1. mgr. 60. gr. komi: öðrum opinberum aðilum eða einkaaðilum innheimtu þess.
     18.      Í stað orðanna „skv. XIII. kafla“ í 61. gr. komi: samkvæmt þessum kafla.
     19.      Við 64. gr.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „20. október“ í 6. mgr. komi: 15. desember.
                  b.      Á eftir 6. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Fjárhæð gjalds á hvert kílógramm af slátruðum laxi sem er unninn af rekstrarleyfishafa hér á landi skal nema 75% af gjaldi skv. 1. mgr. Ráðherra skal gefa út reglugerð um atriði til viðmiðunar um hvað teljist lokaður búnaður og hálflokaður búnaður sem og hvernig votta skuli slíkan búnað og notkun hans og hvenær lax telst unninn af hálfu rekstrarleyfishafa en miða skal við að lax sé hið minnsta flakaður. Einnig má ákveða í reglugerð að miða eigi við annað hlutfall gjalds í 5. mgr. en fram kemur í því ákvæði.
                  c.      Í stað tilvísunarinnar „2.–6. mgr.“ í 7., 8. og 9. mgr. komi: 2.–7. mgr.
     20.      Í stað tilvísunarinnar „2.–6. mgr.“ í lokamálslið 65. gr. komi: 2.–7. mgr.
     21.      2. mgr. 66. gr. falli brott.
     22.      Í stað orðanna „16 ára“ í 1. mgr. 87. gr. komi: 25 ára en til 16 ára við endurnýjun leyfis skv. 89. gr.
     23.      Fyrirsögn 91. gr. orðist svo: Strok úr landeldi.
     24.      Við 127. gr.
                  a.      Í stað dagsetningarinnar „1. september 2026“ í 1. mgr. komi: 1. janúar 2027.
                  b.      9. mgr. orðist svo:
                      Ef aðeins einn rekstrarleyfishafi er með starfsemi á tilteknu smitvarnasvæði við gildistöku laga þessara skal miða við að lífmassi samkvæmt rekstrarleyfum sem þá eru í gildi sé leyfilegur lífmassi.
     25.      Við bætist tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
        a. (I.)
                     Þrátt fyrir ákvæði 127. gr. öðlast XIV. kafli gildi 1. september 2026. Gjald skv. 1. mgr. 64. gr. skal nema grunnframleiðslugjaldi 65. gr. til 31. desember 2030 og taka breytingum til samræmis við 2.–7. mgr. 64. gr.
        b. (II.)
                     Sé hámarkslífmassi í tilteknu vatnshloti eða öðru afmörkuðu hafsvæði skv. 1. mgr. 5. gr., við gildistöku laga þessara, hærri en leyfilegur lífmassi á því svæði, er heimilt að úthluta því magni sem nemur mismuninum með opinberri úthlutun til rekstrarleyfishafa sem fyrir eru á svæðinu. Mat á tilboðum skal fara fram skv. 3. mgr. 25. gr., en sérstaklega skal litið til þess hvernig tilboðsgjafi hyggst stunda reksturinn út frá umhverfis- og dýravelferðarsjónarmiðum.