Ferill 703. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1356  —  703. mál.

                                  

                                  

Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um ferðir til Brussel og Washington árið 2026.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu oft og í hvaða tilgangi hefur ráðherra ferðast eða hefur áform um að ferðast til annars vegar Brussel og hins vegar Washington á árinu 2026?

    Ráðherra hefur sótt eftirtalda fundi til Brussel og Washington á árinu 2026:

Ferðastaður Tilgangur

Dags.

Brussel
Varnarmálaráðherrafundur NATO
– Samtal við Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna
11.02.–12.02.
Washington Fundir með:
– Andy Baker varaþjóðaröryggisráðgjafa
– Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra
– Jeff Goettman varautanríkisviðskiptaráðherra
– Jeanne Shaheen öldungadeildarþingmanni
– Lisa Murkowski öldungadeildarþingmanni
– Steve Daines öldungadeildarþingmanni
10.03.–11.03.
Brussel Fundir með:
– Radmila Shekerinska, varaframkvæmdastjóra NATO
– Maros Sefcovic, framkvæmdastjóra hjá ESB, ábyrgur fyrir utanríkis-viðskiptum og samskiptum við Ísland
– Marta Kos, framkvæmdastjóra stækkunarmála ESB
– Kaja Kallas, utanríkismálastjóra ESB

Undirritun samstarfsyfirlýsingar Íslands og ESB um öryggis- og varnar-mál með utanríkismálastjóra ESB
18.03.
    
    Auk framangreinds átti utanríkisráðherra samtal við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, samhliða utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Helsingborg í Svíþjóð 22. maí. Þá áttu utanríkisráðherra og utanríkisráðherra Bandaríkjanna fund í ranni norðurskautsríkjanna sjö innan Atlantshafsbandalagsins í Helsingborg sama dag.
    Það sem eftir lifir árs 2026 er áformað að utanríkisráðherra taki þátt í varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í júní og utanríkisráðherrafundi bandalagsins í Brussel í desember. Í október mun utanríkisráðherra leiða viðskiptasendinefnd á vegum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins til Minneapolis. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra heimsæki Washington á nýjan leik og eigi fundi með þarlendum ráðamönnum á seinni helmingi ársins. Í nóvember er gert ráð fyrir að utanríkisráðherra taki þátt í EES-ráðsfundi í Brussel.