Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1357 — 651. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa.
1. Í hvaða nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir?
Utanríkisráðherra skipar í þróunarsamvinnunefnd samkvæmt lögum nr. 121/2008, um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, og í heiðursmerkjanefnd samkvæmt forsetabréfi nr. 76/2024 um heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar. Þá skipar ráðherra 31 fulltrúa í útflutnings- og markaðsráð til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara, sbr. 4. mgr. 2. gr. a laga nr. 38/2010, um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun.
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur utanríkisráðherra skipað í eftirfarandi nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa:
| Þróunarsamvinnunefnd | |
| Skipuð | Formaður: Stella Samúelsdóttir , UN Women Íslandi , formaður Aðalfulltrúar: Birna Þórarinsdóttir , UNICEF á Íslandi Dagbjört Hákonardóttir, Samfylkingunni Diljá Mist Einarsdóttir, Sjálfstæðisflokki Halldór Halldórsson , Íslenska kalkþörungafélaginu Ingvar Þóroddsson , Viðreisn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir , Flokki fólksins Kristín Ólafsdóttir , Hjálparstarfi kirkjunnar Ragnar Schram , SOS Barnaþorpum Sólrún María Ólafsdóttir , Rauða krossinum á Íslandi Stefán Vagn Stefánsson , Framsóknarflokki Sveinn Óskar Sigurðsson , Miðflokki Sjöfn Vilhelmsdóttir , Landgræðsluskóla GRÓ Valmundur Valmundarson , Sjómannasambandi Íslands Þór Heiðar Ásgeirsson , Sjávarútvegsskóla GRÓ |
| Skipuð | Þróunarsamvinnunefnd Varafulltrúar: Bjarni Gíslason , Hjálparstarfi kirkjunnar Bjarni Richter , Jarðhitaskóla GRÓ Halla Hrund Logadóttir , Framsóknarflokki Helga Bára Bragadóttir , SOS Barnaþorpum Dr. Irma Erlingsdóttir , Jafnréttisskóla GRÓ Lilja Hrund Lúðvíksdóttir , Samtökum atvinnulífsins Ómar Már Jónsson , Miðflokki Ragnar Gunnarsson , Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga Ragnar Þór Ingólfsson , Flokki fólksins Sara McMahon , UN Women Íslandi Sigmar Guðmundsson , Viðreisn Sigmundur Ernir Rúnarsson , Samfylkingunni Steinunn Jakobsdóttir , UNICEF á Íslandi |
| Skipunartími | Skipunartími formanns frá 16. ágúst 2024 til 16. ágúst 2028 (skipuð á síðasta kjörtímabili) Skipunartími aðalfulltrúa og varafulltrúa frá 23. maí 2025 til 23. maí 2029 |
| Þóknun | Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í nefndinni |
| Heiðursmerkjanefnd | |
| Skipuð | Martin Eyjólfsson , ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis, formaður Katrín Einarsdóttir, prótókollstjóri utanríkisráðuneytis Birgir Hrafn Búason, mannauðsstjóri utanríkisráðuneytis |
| Skipunartími | Seta í nefndinni er ótímabundin en bundin við skipunartíma eða setningu í tilgreind störf , sbr. 8. gr. forsetabréfs um heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar |
| Þóknun | Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í nefndinni |
| Starfshópur um utanríkisviðskipti og efnahagslegt öryggi | |
| Skipuð | Dr. Benedikt Jóhannesson , formaður Hlynur Guðjónsson , sendifulltrúi í utanríkisráðuneyti Dr. Sigurður Páll Ólafsson , skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti Anna Hrefna Ingimundardóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Dr. Sveinn Agnarsson , prófessor við Háskóla Íslands |
| Skipunartími | Frá 17. desember 2025 fram að skilum á niðurstöðum og tillögum sem áætlað er að verði í ágúst 2026 |
| Þóknun | Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar |
| Starfshópur um hagsmunagæslu stjórnvalda vegna endurskoðunar ETS-kerfis vegna millilandaflugs | |
| Skipuð | Ingólfur Friðriksson , skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyti, formaður Guðmundur V. Friðjónsson , sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneyti Guðrún Heiður Ísaksdóttir , sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti Vala Hrönn Viggósdóttir , lögfræðingur í innviðaráðuneyti |
| Skipunartími | Frá 6. október 2025. Erindi starfshópsins tekur mið af þróun í lagasetningarferli Evrópusambandsins og upptökuferli í EES-samninginn |
| Þóknun | Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í starfshópnum |
| Matshópur um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka í þróunarsamvinnu | |
| Skipuð | Sólveig Ólafsdóttir , sérfræðingur Sunna Kristín Hilmarsdóttir , verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík Þórður Kristinsson , mannfræðingur |
| Skipunartími | 3. júní 2025 til 2. júní 2026 |
| Þóknun | Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar |
| Matshópur Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífs um þróunarsamvinnu | |
| Skipuð | Huld Ingimarsdóttir , fyrrverandi fjármálastjóri hjá Reykjavíkurborg Konráð S. Guðjónsson , hagfræðingur hjá Kontext ehf. og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Regína Bjarnadóttir , þróunarhagfræðingur og framkvæmdastjóri Aurora Foundation |
| Skipunartími | 1. maí 2025 til 30. apríl 2027 |
| Þóknun | Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar |
2. Í hvaða stjórnir er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hverja stjórn á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma? Hverjir þeirra eru jafnframt starfsmenn ráðuneyta og í hvaða stjórnum sitja þeir?
Utanríkisráðherra skipar stjórn GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu til sex ára í senn í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1260/2019.
Núverandi skipun stjórnar er sem hér segir:
– Ólafur Stephensen, formaður
– Dr. Antonio Abreu, fulltrúi aðalframkvæmdastjóra UNESCO
– Halla Jónsdóttir, fulltrúi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis
– Sæunn Stefánsdóttir, fulltrúi íslensku UNESCO nefndarinnar
– Ragnar Schram, fulltrúi þróunarsamvinnunefndar
Skipunartími formanns er frá 20. apríl 2026 og skipunartími annarra stjórnarmeðlima er frá 12. febrúar 2026.
Af framangreindum einstaklingum er Halla Jónsdóttir starfsmaður Stjórnarráðs Íslands.