Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1368  —  393. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um framkvæmd svartolíubanns.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða skref hyggst ríkisstjórnin stíga til að banna notkun og losun svartolíu og hreinsibúnaðar innan 12 sjómílna íslenskrar landhelgi, í samræmi við aðgerðir sem Danmörk, Svíþjóð og Finnland hafa þegar innleitt?

    Stór skref hafa verið tekin á heimsvísu og á Íslandi undanfarin ár til að takmarka notkun svartolíu í skipum og bregðast við mengun sem tengist henni, sbr. svar við tengdri fyrirspurn um reglur um losun og eldsneytisnotkun skipa. Eftir árið 2020 hætti íslenski fiskiskipaflotinn alveg notkun svartolíu. Svartolía er þó notuð af flutningaskipum og skemmtiferðaskipum en hertar reglur um innihald skipaeldsneytis þýða að mengun frá henni er minni en var fyrir árið 2020.
    Heimilt er að nota svartolíu innan landhelgi Íslands ef notaður er sérstakur vothreinsibúnaður, sem getur verið opinn (þá er loftmengun síuð úr reyk og sett í sjóinn), lokaður (þá fara mengunarefni í tanka sem er hægt að losa í sjóinn eða í höfnum þar sem búnaður er til að taka á móti slíku) eða blandaður. Losun fljótandi efna frá skipum er að öðru leyti óheimil á hafsvæði innan þriggja sjómílna frá grunnlínu landhelginnar. Losun ómengaðs vatns og sjávar er heimil.
    Ísland samþykkti á ráðherrafundi OSPAR ásamt 12 öðrum strandríkjum við Norðaustur-Atlantshaf sem eiga aðild að OSPAR-samningnum að banna notkun vothreinsibúnaðar í höfnum og á innsævi en að auki var þeim tilmælum beint til ríkja að skoða bann við slíkum búnaði innan 12 mílna. Unnið er að áhrifamati á vegum OSPAR til að skoða áhrif banns á vothreinsibúnað í landhelgi almennt og í kjölfar þess verður skoðað hvort lagt verður til að OSPAR samþykki ákvörðun um bann sem nær til landhelgi. Þrjú ríki, Danmörk, Svíþjóð og Finnland, hafa þegar bannað losun úr vothreinsibúnaði innan 12 mílna, þar á meðal alveg í Eystrasalti sem er grunnt og lokað innhaf og mjög mengað. Við Ísland eru aðrar aðstæður, miklum mun minna mengunarálag af þessum sökum og ástand sjávar með tilliti til efnamengunar og næringarefna mjög gott. Þó er full ástæða til að skoða frekari aðgerðir til að draga enn frekar úr mengun við Ísland. Það verður gert á komandi misserum, m.a. í samstarfi við aðildarríki OSPAR-samningsins og Alþjóðasiglingamálastofnunina (IMO).