Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1369  —  392. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um reglur um losun og eldsneytisnotkun skipa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hyggst ríkisstjórnin tryggja að reglur um losun frá skipum og eldsneytisnotkun innan landhelgi Íslands séu samhæfðar við reglur norrænna nágranna og alþjóðlegar skuldbindingar, þ.m.t. VI. viðauka MARPOL-samningsins, til að stuðla að vistvænni siglingum á norðurslóðum?

    Ísland er aðili að MARPOL-samningnum undir Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO), sem setur reglur sem miða að því að lágmarka mengun frá skipum, þ.m.t. VI. viðauka sem fjallar um varnir gegn loftmengun frá skipum. Ákvæði MARPOL eru innleidd í íslenskan rétt, m.a. í gegnum lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, og með reglugerðum sem byggja á ákvæðum þeirra laga. Ísland hefur einnig innleitt reglugerð ESB um brennisteinsinnihald í tilteknu fljótandi eldsneyti en þar er m.a. að finna ákvæði er varða skipaeldsneyti. Þá hefur Ísland samþykkt með öðrum ríkjum OSPAR-samningsins um vernd Norðaustur-Atlantshafsins bann við losun frá vothreinsibúnaði í höfnum og á innsævi. Reglur um losun frá skipum og eldsneytisnotkun eru með þessu að miklu leyti en ekki öllu sambærilegar á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum en ekki er sérstök formleg samvinna Norðurlandanna um samhæfingu í þeim efnum.
    Miklar breytingar hafa orðið á eldsneytisnotkun skipa og losun frá þeim á undanförnum árum og áratugum, bæði á heimsvísu og við Ísland. Á grundvelli MARPOL voru settar strangar reglur um brennisteinsinnihald skipa á heimsvísu, sem tóku gildi árið 2020 og hámörkuðu það við 0,5%. Á sama tíma settu íslensk stjórnvöld reglugerð nr. 1084/2019 sem kveður á um að brennisteinsinnihald innan landhelgi Íslands og innsævis skuli að hámarki vera 0,1%, að undanskildu eldsneyti til skipa sem nota viðurkenndar aðferðir til að draga úr losun (þ.e. sams konar ákvæði og gildir fyrir ECA-svæði skv. viðauka VI við MARPOL-samninginn).
    Þessar reglur hafa dregið mjög úr mengun sem tengist svartolíunotkun. Í nýlegri rannsókn bresku rannsóknastofnunarinnar National Centre for Atmospheric Science segir að losun brennisteinsefna frá siglingum á heimsvísu sé líklega innan við 1/7 af því sem var áður en reglur IMO 2020 gengu í gildi. Ekki liggur fyrir sams konar mat fyrir Ísland og íslensk hafsvæði en ljóst er að þróunin hefur verið sambærileg hér og má benda á að eftir reglubreytingar 2020 hefur íslenski fiskiskipaflotinn alveg hætt notkun svartolíu og notar þess í stað hreinna eldsneyti (sjá súlurit, byggt á tölum frá Umhverfis- og orkustofnun). Flutningaskip og skemmtiferðaskip nota enn svartolíu að einhverju leyti en þurfa að nota hreinna eldsneyti eða vothreinsibúnað innan landhelgi Íslands. Mengun af völdum sótagna frá skipum hefur líka minnkað samfara hertum reglum og minni notkun svartolíu.
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfesti þátttöku Íslands í sérstöku mengunarvarnarsvæði AtlECA sem stofnað var á grunni tillögu sem lögð var fram hjá IMO 2025. Með því verða reglur um eldsneytisnotkun og mengun frá skipum enn frekar hertar og samhæfðar á Norður-Atlantshafi í ársbyrjun 2027. Svæðið nær yfir lögsögu Íslands og sjö annarra ríkja, frá Grænlandi og Íslandi til Spánar og Portúgals. Þar er kveðið á um strangar reglur varðandi losun brennisteins- og köfnunarefnissambanda frá skipum. Áður hafa sambærileg svæði verið sett á fót annars staðar við Norður-Atlantshaf innan lögsögu ríkja þar, í Eystrasalti, Norðursjó og í lögsögum Bandaríkjanna, Kanada og Noregs.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.