Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1371  —  390. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um aðgerðir til að draga úr losun sótagna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðgerðir hyggst ríkisstjórnin innleiða til að draga úr losun sótagna frá skipum á norðurslóðum, með hliðsjón af áhrifum þeirra til hraðari bráðnunar íss og loftslagsbreytinga og með tilliti til skuldbindinga Íslands í Norðurlandaráði og Alþjóðasiglingamálastofnuninni um notkun sjálfbærari orkugjafa við skipaferðir á norðurslóðum?

    Verulega hefur dregið úr mengun vegna sótagna frá skipum við Ísland á undanförnum árum, einkum vegna hertra krafna á alþjóðavísu og innan lands varðandi brennisteinsinnihald í eldsneyti, sem hefur leitt til þess að útgerðir skipa hafa skipt úr svartolíu yfir í hreinna eldsneyti en í einhverjum tilvikum sett upp mengunarvarnabúnað með áframhaldandi notkun svartolíu; hvort tveggja dregur úr losun sótagna í andrúmsloftið samhliða minni losun brennisteinssambanda.
    Almennt gilda sömu eða sambærilegar reglur um eldsneyti og mengunarvarnir frá skipum á íslensku hafsvæði og hjá nágrannaríkjum okkar við Norður-Atlantshaf, m.a. með þátttöku í reglum á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO). Þær reglur hafa verið hertar á undanförnum árum. Enn eitt skref í átt að hertum reglum og samræmdum kröfum varðandi mengunarvarnir frá skipum við Norður-Atlantshaf verður stigið á næsta ári, 2027, með væntanlegri gildistöku AtlECA-svæðisins sem nær yfir lögsögu Íslands og sjö annarra ríkja.
    Losun sótagna frá Íslandi telst lítil og hefur farið minnkandi. Losunin mældist um 89 tonn árið 2023 og hafði þá minnkað um 60% frá 1990, samkvæmt skýrslu Íslands 2025 til CLRTAP-samningsins um loftmengun sem berst langar leiðir, sem unnin var af Umhverfis- og orkustofnun. Hlutur fiskiskipa þar var um 7 tonn, eða um 8%. Í skýrslu Íslands til Norðurskautsráðsins frá 2025 (EGBCM Summary of Progress and Recommendations) kemur fram að hlutur Íslands í losun sótagna á ábyrgð Norðurskautsráðsríkjanna átta er um 0,03%.
    Hlýnunaráhrif sótagna eru einkum bundin við að þær setjist á ís og hraði bráðnun hans. Því skiptir miklu máli að sem minnst mengun af völdum sótagna og helst engin sé frá siglingum í ís. Á vegum IMO hafa verið settar sérstakar reglur á heimskautasvæðunum, svokallaður Pólkóði (Polar Code). Ísland hefur stutt tillögur um hertar reglur um mengunarvarnir á Pólkóðasvæðinu. Tillaga kom fram nýlega innan IMO um skilgreiningu og kröfur um heimskautaeldsneyti, einkum til að draga úr losun sótagna, en sem nær yfir mun víðara svæði en Pólkóðinn, þar á meðal yfir hafsvæði Íslands og Noregs þar sem siglingaleiðir eru fyrir opnu hafi. Þær tillögur eru nú til skoðunar og umfjöllunar í IMO en mat á líklegum áhrifum þeirra á siglingar við Ísland og umhverfisávinning liggur ekki fyrir.