Ferill 550. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1388 — 550. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggjast að verulegu leyti á þjónustu Microsoft. Fyrst og fremst er um að ræða lausnir innan Microsoft 365 skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar. Dæmi um lausnir innan Microsoft 365 eru Outlook, Word, excel, PowerPoint, Teams o.s.frv., sem eru nýttar í daglegum rekstri.
Skýjageirar ríkisins fyrir skrifstofuhugbúnað eru níu talsins í rekstri sjö ólíkra aðila. Ráðuneytin eru rekin saman (Umbra), heilbrigðisstofnanir í tveimur (Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri), löggæsla í einum (ríkislögreglustjóri), dómskerfið í einum (Umbra), ríkisreknir háskólar og menntaskólar í einum (Háskóli Íslands), Landhelgisgæslan í einum (Landhelgisgæslan), Alþingi, auk Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis, í einum (Alþingi) og loks eru um 60 stofnanir sameiginlega í einum (Umbra).
Helstu kerfi stofnana ráðuneytisins eru eftirfarandi:
| Dómsmálaráðuneytið | ||||
| Hugbúnaður/kerfi | Fyrirtæki |
Höfuðstöðvar fyrirtækis |
Gögn vistuð |
Heimilisfesti endanlegra eigenda |
| DMR | ||||
| AWS v/dmr.is | Amazon Írland | BNA | EES | BNA |
| AWS afritun | Amazon Svíþjóð | BNA | EES | BNA |
| Kóðasafn dmr.is | Github | BNA | EES | BNA |
| RLS | ||||
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Innri kerfi | RLS | Ísland | Ísland | Ísland |
| LHG | ||||
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Innri kerfi | LHG | Ísland | Ísland | Ísland |
| ÞÍ | ||||
| Þjóðskrá Íslands | Þjóðskrá Íslands | Ísland | Ísland | Ísland |
| Þjóðskrá Íslands | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Innri kerfi | ÞÍ | Ísland | Ísland | Ísland |
| Sýslumenn | ||||
| Sýslan | ABRA | Ísland | Ísland | Ísland |
| Fangelsismálastofnun | ||||
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
Gögn ráðuneytanna sem hýst eru í skýjalausnum erlendra þjónustuaðila eru fyrst og fremst til komin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
Gagnagrunnar og gagnavinnsla á vegum dómsmálaráðuneytisins fer að miklu leyti fram í skýjaþjónustu Amazon Web Services (AWS) á Írlandi og í Svíþjóð. Um er að ræða gögn sem verða til við daglega notkun og virkni kerfa, svo sem upplýsingar sem tryggja að þjónusta virki rétt, sé örugg og tiltæk.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
Ekki hefur verið sett fram ein sameiginleg, formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í gagna- og upplýsingamálum ráðuneytanna. Hins vegar taka þau í framkvæmd mið af sömu meginsjónarmiðum og þeim stefnum sem settar hafa verið fyrir opinbera aðila, svo sem yfirráðum yfir gögnum, öryggi, aðgangsstýringum, staðsetningu vinnslu og geymslu gagna, samræmi í lausnum og því að verða ekki of háð einstökum þjónustuaðilum.
Umræða um stafrænt fullveldi hefur aukist vegna vaxandi óvissu í alþjóðlegum stjórnmálum. Í því samhengi hefur sjónum verið beint að bandarískri löggjöf sem veitir yfirvöldum heimildir til að afla upplýsinga frá þarlendum fyrirtækjum til að rannsaka glæpi og verjast hryðjuverkum. Þessar heimildir hafa meðal annars vakið upp spurningar varðandi persónuverndarsjónarmið, þar sem hætta þykir á að bandarísk stjórnvöld geti krafist aðgangs að gögnum evrópskra viðskiptavina. Persónuverndarfulltrúi Stjórnarráðsins hefur nýlega lokið sérstakri greiningu þar sem lagt var mat á heimildir bandarískra yfirvalda til aðgangs að persónuupplýsingum. Niðurstaða þeirrar greiningar var að ekki þyki þörf á frekari athugunum eða sérstöku mati af hálfu Stjórnarráðsins á þessu stigi. Sú niðurstaða byggist að miklu leyti á, og er í fyllsta samræmi við, viðamiklar greiningar annarra Evrópuþjóða á þessum sömu áskorunum, ekki síst ítarlegt mat hollenskra stjórnvalda á sambærilegum skýjalausnum.
Stjórnvöld munu áfram fylgjast grannt með tækniþróun á þessu sviði og taka virkan þátt í samstarfi Evrópuríkja til að mæta þessum sameiginlegu áskorunum.
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
Já, öll lén (rótarföng) ráðuneytisins og undirstofnana eru skráð á Íslandi undir landsléninu .is hjá ISNIC.
Hvað varðar vefi, póstþjóna og nafnaþjóna þá lýtur það að rekstri og hýsingu þeirrar tækniþjónustu fremur en formlegri skráningu. Eins og rakið er í svörum við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar er sú undirliggjandi þjónusta í skýjalausnum þjónustuaðila innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vefur, póstþjónusta og nafnaþjónusta dómsmálaráðuneytis er á vegum UMBRA ýmist hýst innan lands eða hjá erlendum aðilum.
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Umbra er þjónustuaðili alls Stjórnarráðsins. Meginþorri tölvupóstþjónustu stjórnvalda er í skýjalausnum utan Íslands og viðbragðsáætlunin tekur mið af tveimur meginsviðsmyndum:
Ef hefðbundið netsamband um sæstrengi dettur út hefur verið, í samstarfi við Farice, komið á varaleið um gervihnetti sem þegar er komin í prófanir. Þessi leið tryggir að bæði innlend og erlend tölvupóstsamskipti haldi áfram án verulegs rofs. Til lengri tíma litið hefur Ísland einnig tryggt sér aðgang að öruggum fjarskiptatengingum í gegnum gervihnattakerfi Evrópusambandsins sem mun styrkja þessar varnir enn frekar.
Ef allt samband rofnar við útlönd, þ.m.t. gervihnattasamband, fellur tenging við skýjalausnir erlendis niður. Í þeirri sviðsmynd tekur við viðbragðsáætlun um að endurreisa staðbundið póstkerfi sem byggist á gagnaafritum sem hýst eru á Íslandi. Slík endurreisn tryggir innlenda tölvupóstþjónustu milli ráðuneytanna og annarra innlendra aðila.