Ferill 626. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1393 — 626. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um eldsneytisbirgðir Landhelgisgæslu Íslands.
1. Hvernig er núverandi staða á eldsneytisbirgðum fyrir flugflota Landhelgisgæslu Íslands utan höfuðborgarsvæðisins?
Staða birgða telst á heildina litið ásættanleg að svo stöddu, þó að ljóst sé að tækifæri séu til umbóta sem gætu, með markvissum aðgerðum, stuðlað að aukinni hagkvæmni og betri nýtingu birgða til lengri tíma.
2. Á hvaða stöðum, utan Reykjavíkur, geta þyrlur Landhelgisgæslunnar nálgast eldsneyti á þær?
Landhelgisgæsla Íslands er með þyrlueldsneyti á níu stöðum utan höfuðborgarsvæðisins; Keflavík, Vestmannaeyjum, Hornafirði, Egilsstöðum, Þórshöfn, Akureyri, Ísafirði, Rifi og Hrauneyjavirkjun. Landhelgisgæslan býr einnig yfir færanlegum eldsneytistanki sem hægt er að flytja á milli landshluta eftir þörfum.
Þá hefur varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands, í umboði utanríkisráðuneytisins, umsjón og eftirlit með rekstri eldsneytisbirgðastöðvar Atlantshafsbandalagsins í Helguvík, á Keflavíkurflugvelli og tengdu lagnakerfi. Í stöðinni er mestallt flugvélaeldsneyti sem flutt er til landsins geymt. Stöðin þjónustar bæði almennt flug og herflug og er hluti af öryggisviðbúnaði bandalagsins hér á landi.
Í nánu samstarfi við leigutaka, Olíudreifingu ehf., fer fram reglulegt eftirlit með rekstri, birgðastöðu og innflutningi, eftirlit sem í samvinnu við utanríkisráðuneytið hefur verið aukið síðustu mánuði.
3. Telur ráðherra að þeir staðir séu nægilega margir og dreifðir um landið svo fyllsta öryggis sé gætt?
Samhliða nýrri Landhelgisgæsluáætlun sem nú er unnið að í dómsmálaráðuneytinu er jafnframt unnið að aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Eitt af því sem kemur til greina er að endurskoða staðsetningu eldsneytisbirgða Landhelgisgæslunnar með tilliti til öryggis, hagkvæmni og betri nýtingar birgða.
4. Hvernig og hversu fljótt er brugðist við ef eldsneyti rennur út eða klárast á viðkomandi stöðum?
Landhelgisgæslan lendir sjaldan í því að geta ekki tekið eldsneyti á flugvöllum á landsbyggðinni vegna þess að það hafi klárast eða runnið út og reynt er að sporna við fyrningu eldsneytis með því að taka reglulega eldsneyti utan höfuðborgarsvæðisins. Landhelgisgæslan er til að mynda nær eini aðilinn sem tekur eldsneyti á Rifi og í Vestmannaeyjum. Það krefst þess að þyrlurnar lendi þar reglulega og hreyfi eldsneytið til að það renni ekki út og eins svo að grundvöllur sé fyrir olíufélögin til að halda þjónustunni gangandi. Ef eldsneyti rennur út á Þórshöfn getur tekið umtalsverðan tíma að endurnýja birgðirnar en gildistími birgða þar er misjafn og eldsneytið rennur því ekki allt út á sama tíma.
Renni eldsneyti út eða það klárast er reynt að bregðast strax við í samvinnu við það olíufélag sem þjónustar viðkomandi stað.