Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1398  —  612. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um rekstur samgöngumannvirkja og framlög til verkefna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.


     1.      Hvernig verður rekstri samgöngumannvirkja háttað að framkvæmdatíma samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins loknum?
    Eins og fram kemur í greinargerð með lögum nr. 81/2020, um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, verða vegamannvirki að loknum framkvæmdum afhent ríki eða því sveitarfélagi sem ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi inviðanna í samræmi við ákvæði gildandi laga hverju sinni. Ljóst er að rekstur leiðakerfis borgarlínu mun þó krefjast samhæfingar milli aðila í rekstri svo að tryggt sé að vagnar geti ekið greiðlega samkvæmt áætlun um allt höfuðborgarsvæðið. Er þar horft til samstarfs veghaldara, með sambærilegum hætti og hefð er fyrir á svæðinu við ýmsa vegaþjónustu, svo sem vetrarþjónustu og gatnahreinsun. Hvað varðar rekstur biðskýla hefur ábyrgð á rekstri þeirra hingað til verið á höndum sveitarfélaga. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um breytingar á því fyrirkomulagi.

     2.      Er gert ráð fyrir frekari framlögum frá ríki og/eða sveitarfélögum til að standa undir verkefnum í samgöngusáttmálanum en fram koma í þeirri áætlun sem kynnt hefur verið fyrir fjárlaganefnd Alþingis? Mun t.d. þurfa rekstrarfjármögnun vegna borgarlínu þegar fram í sækir vegna endurnýjunar vagna og þess háttar?
    Rekstur almenningssamgangna er ekki hluti af kostnaði við verkefni samgöngusáttmálans. Rekstrarkostnaður almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu hefur hingað til verið borinn af Strætó bs. og fjármagnaður að mestu með tekjum af farmiðasölu ásamt framlögum sveitarfélaga á svæðinu og styrk frá ríkinu. Við uppfærslu samgöngusáttmálans árið 2024 sömdu aðilar um að breyting yrði gerð á því fyrirkomulagi og að nýtt félag yrði stofnað um reksturinn í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga. Það félag ber nú ábyrgð á rekstrinum og rekstraráætlunum til framtíðar, þ.m.t. vegna borgarlínu. Tilkoma borgarlínu felur í sér aukna þjónustu og bætta tíðni sem líklega eykur rekstrarkostnað almenningssamgangna. Sá kostnaður liggur ekki fyrir að svo stöddu.

     3.      Er gert ráð fyrir slíkum framlögum við arðsemismat verkefnisins?
    Gert er ráð fyrir auknum framlögum til reksturs almenningssamgangna í arðsemismati. Í töflu 5.1 á bls. 29–30 í fylgiskjali eru upplýsingar um áætlaðan rekstrarkostnað innviða sáttmálans og aukna þjónustu almenningssamgangna með innleiðingu nýs leiðanets með borgarlínu- og strætisvögnum.

Fylgiskjal.

Arðsemismat samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins – tafla 5.1.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1398-f_I.pdf