Ferill 722. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1443 — 722. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um fjárhæð lífeyrisréttinda og fjölda lífeyrisþega.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hver var árleg heildarfjárhæð örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslna á tímabilinu 2010–2025, þ.m.t. öll viðbótarréttindi sem tengjast þessum bótaflokkum, svo sem heimilisuppbót, barnalífeyrir og bifreiðatengdir bótaflokkar, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
2. Hver var árlegur heildarfjöldi þeirra sem fengu örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur að upphæð 1 kr. eða meira árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
3. Hver var árleg heildarfjárhæð ellilífeyrisréttinda á tímabilinu 2010–2025, þ.m.t. öll viðbótarréttindi sem tengjast þessum bótaflokki, svo sem heimilisuppbót, barnalífeyrir og bifreiðatengdir bótaflokkar, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
4. Hver var árlegur heildarfjöldi einstaklinga sem fengu ellilífeyri frá TR að upphæð 1 kr. eða meira á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
Skriflegt svar óskast.