Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1445 — 724. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um endurreisn Grindavíkur.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hvenær er stefnt að því að kynna endurkaupaáætlun vegna fasteigna í Grindavík?
2. Kemur til greina að gera leigusamninga við Grindvíkinga í stað hollvinasamninga?
3. Hvaða rök eru fyrir svokallaðri tólf daga reglu í hollvinasamningum við Grindvíkinga?
4. Hvaða rök eru fyrir því að takmarka heimildir Grindvíkinga til rafrænnar vöktunar á eignum sínum?
5. Verða íbúar sem ekki seldu fasteignafélaginu Þórkötlu fasteignir sínar settir undir sömu kvaðir og gilda samkvæmt hollvinasamningum?
6. Liggja fyrir tímasettar áætlanir um frekari endurreisn og uppbyggingu bæjarins?
7. Verður skólahald heimilað í Grindavík á komandi skólaári?
Skriflegt svar óskast.