Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 167 — 161. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um POTS-heilkennið og vökvagjöf.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Telur ráðherra að hlutast ætti til um að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að hætta niðurgreiðslu vökvagjafar fyrir fólk með POTS-heilkennið frá og með 1. október nk. verði frestað þar til niðurstaða starfshóps á vegum ráðuneytisins um málefni fólks með Long COVID, ME og POTS liggur fyrir?
2. Liggja fyrir upplýsingar um kynjahlutföll einstaklinga með POTS og þeirra sem nýta sér vökvagjöf? Ef svo er, hver eru hlutföllin?
Skriflegt svar óskast.