Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 172  —  110. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um samnýtingu skattþrepa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Í hvaða tekjutíund eru tekjulægri makar þeirra sem njóta samnýtingar skattþrepa, hversu margir eru í hverri tekjutíund og hversu hárri fjárhæð af miðþrepinu deila þeir með maka sínum? Óskað er eftir lægstu fjárhæð, hæstu fjárhæð, meðaltali og miðgildi fyrir hverja tekjutíund.

    Eftirfarandi svar byggist á álagningu einstaklinga 2025 vegna tekna ársins 2024. Ívilnun tekjuskatts vegna samnýtingar þrepa er gerð upp við álagningu í maí ár hvert. Samnýting þrepa er einungis heimil þegar annar aðilinn er með tekjuskatts- og útsvarsstofn í þriðja þrepi tekjuskatts. Tölur í eftirfarandi greiningu eru á ársgrunni og miðast við tekjuskatts- og útsvarsstofn en ekki fjármagnstekjur. Undirliggjandi viðmið tekjutíundar er það að öllum einstaklingum á grunnskrá álagningar tekjuskatts er raðað í tíu jafn stóra hópa eftir tekjum.
    Alls eru 14.500 einstaklingar sem nýta miðþrep hjá tekjulægri maka til að lækka tekjuskattsstofn sinn í þriðja þrepi. Alls nam eftirgjöf tekjuskatts tæpum 2,8 milljörðum kr.
    Mynd 1 sýnir hvernig tekjulægri aðilinn raðast innan tekjutíunda tekjudreifingarinnar. Yfir helmingur þeirra sem deilir öðru þrepi með tekjuhærri maka er í tekjutíund 7 og ofar.

Mynd 1 sýnir fjölda tekjulægri maka innan hverrar tekjutíundar.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Í heildina færa tekjuhærri sambúðaraðilarnir alls 33,3 milljarða kr. af tekjuskattsstofni sínum í þriðja þrepi niður í annað þrep þess tekjulægri. Mynd 2 sýnir hversu háa fjárhæð tekjuhærri aðilinn færir úr þriðja þrepi niður í annað þrep hins tekjulægri eftir tekjutíundum.

Mynd 2 sýnir fjárhæð sem tekjuhærri makinn færir í miðþrep hins tekjulægri eftir tíundum tekjudreifingar hins tekjulægri.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




    Mynd 3 sýnir hæstu fjárhæð innan hverrar tekjutíundar sem tekjuhærri aðilinn færir úr þriðja þrepi í miðþrep þess tekjulægri.

Mynd 3 sýnir hæstu fjárhæðina sem tekjuhærri aðilinn færði úr þriðja þrepi í miðþrep hins tekjulægri.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




    Mynd 4 sýnir á sama hátt lægstu fjárhæðina innan hverrar tekjutíundar sem tekjuhærri aðilinn færði úr þriðja þrepi í miðþrep hins tekjulægri.

Mynd 4 sýnir lægstu fjárhæðina sem tekjuhærri aðilinn færði úr þriðja þrepi í miðþrep hins tekjulægri.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




    Mynd 5 sýnir meðaltal og miðgildi þess hluta tekjuskattsstofns sem tekjuhærri aðilinn færði niður í miðþrep hins tekjulægri.

Mynd 5 sýnir meðaltal og miðgildi þess hluta tekjuskattsstofns sem tekjuhærri aðilinn færði niður í miðþrep hins tekjulægri.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.