Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 180 — 172. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um fyrsta og annars stigs þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hvaða úrræði teljast til fyrsta og annars stigs þjónustu innan heilbrigðiskerfisins og eru í þágu barna og foreldra, svo sem námskeið, ráðgjöf og stuðningsverkefni? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og heilbrigðisstofnunum.
2. Að hvaða leyti er framboð og gæði þessara úrræða fullnægjandi til að uppfylla þarfir barnafjölskyldna?
Skriflegt svar óskast.