Ferill 47. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 209 — 47. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (námsstyrkir og endurgreiðslur).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, um að skilyrði lánþega til að hljóta námsstyrk verði rýmkuð, að vaxtaviðmiðum verði breytt og að heimild í lögunum til að greiða af einu láni í einu verði rýmkuð. Einnig eru lagðar til aðrar breytingar sem varða framkvæmd laganna.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 20. maí 2025 með nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar ( þskj. 531, 254. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Líkt og fram kemur í greinargerð er frumvarpið nú lagt fram að nýju með tveimur breytingum. Annars vegar er nú lagt til að breytingar á vaxtaviðmiðum í 4. og 5. gr. frumvarpsins taki þegar gildi í stað þess að taka gildi 1. apríl 2026 líkt og önnur ákvæði frumvarpsins. Hins vegar er nú tekið fram í ákvæði til bráðabirgða skv. 8. gr. að skilmálabreyting H-lána gildi ekki afturvirkt gagnvart afborgunum af lánum sem fallið hafa í gjalddaga áður en ný vaxtaviðmið tóku gildi.
Nefndin hefur haft til hliðsjónar þær umsagnir sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Meiri hlutinn undirstrikar þá afstöðu að mikilvægt sé að málið nái fram að ganga í því skyni að bæta kjör námsmanna og stuðla enn betur að því markmiði laganna að tryggja jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. Jafnframt tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið að tilefni sé til að vinna að frekari endurskoðun laganna á grundvelli ábendinga þess efnis sem fram hafa komið frá gildistöku laganna árið 2020 og koma m.a. fram í skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sem var lögð fram á 154. löggjafarþingi ( þskj. 765, 577. mál).
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og María Rut Kristinsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 16. október 2025.
| Víðir Reynisson, form. |
Guðmundur Ari Sigurjónsson, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | María Rut Kristinsdóttir. | ||