Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 223 — 195. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hver var hlutfallslegur mismunur á sölugengi hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka í útboði í maí 2025 og síðasta dagslokagengi hlutabréfanna fyrir útboð?
2. Hver er mismunur á heildarsöluverði í útboðinu í maí 2025 og söluverði ef miðað er við síðasta dagslokagengi bréfanna fyrir útboð?
3. Hver var hlutfallslegur mismunur á sölugengi hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka í útboði í mars 2022 og síðasta dagslokagengi hlutabréfanna fyrir útboð?
4. Hver er mismunur á heildarsöluverði í útboðinu í mars 2022 og söluverði ef miðað er við síðasta dagslokagengi bréfanna fyrir útboð?
5. Ef útboðsgengið hefði verið það sama í útboðinu 2025 og það var 2022, hvert hefði söluverðmætið 2025 orðið?
Skriflegt svar óskast.