Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 225 — 197. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um tekjur eldri borgara.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hversu hátt hlutfall eldri borgara var með tekjur undir lágmarkslaunum á tekjuárinu 2024? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, aldri og búsetu.
2. Hvernig skiptist þessi hópur eftir hjúskaparstöðu og tekjum maka? Óskað er eftir að sundurliðun sýni hvort einstaklingarnir:
a. búa einir og eru í lægstu tekjutíundunum,
b. eru í sambúð/giftir einstaklingum með sambærilegar tekjur,
c. eru í sambúð/giftir einstaklingum með hærri tekjur.
Skriflegt svar óskast.