Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 227  —  199. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um nemendur af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum landsins.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hversu hátt hlutfall nemenda í leikskólum landsins annars vegar og grunnskólum hins vegar er af erlendum uppruna? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
     2.      Hvernig hafa þessi hlutföll þróast undanfarin fimm ár?
     3.      Hvað hefur verið gert á vegum ráðuneytisins til að styðja sveitarfélög og skóla við kennslu og inngildingu barna af erlendum uppruna?


Skriflegt svar óskast.