Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 267  —  222. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stöðvun niðurgreiðslu á meðferð.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hvernig var tryggt að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um stöðvun niðurgreiðslu á vökvagjöf í æð fyrir einstaklinga sem greindir hafa verið með POTS-heilkenni yrði tekin í samræmi við rannsóknarreglu 10. gr., andmælarétt 13. gr. og rökstuðningsskyldu 21. gr. stjórnsýslulaga?
     2.      Var aflað óháðs sérfræðiálits um árangur og gagnsemi viðkomandi meðferðar? Ef svo er, hver varð niðurstaða þess?
     3.      Var sjúklingum og heilbrigðisstarfsmönnum gefinn kostur á því að tjá sig áður en ákvörðun var tekin? Hvernig var þeim leiðbeint um rétt sinn til að leggja fram kæru?
     4.      Var tekið tillit til réttmætra væntinga sjúklinga, sem áður höfðu notið greiðsluþátttöku, í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar og 76. gr. stjórnarskrárinnar um rétt allra, sem þess þurfa, til aðstoðar vegna sjúkleika?
     5.      Hefur ráðuneytið látið vinna mat á áhrifum ákvörðunarinnar á heilsu, lífsgæði og atvinnuþátttöku sjúklinga, þar á meðal á því hvort aukinn kostnaður kunni að hljótast af ákvörðuninni vegna veikinda, örorku eða aukins álags í heilbrigðisþjónustu?
     6.      Lagði heilbrigðisráðherra fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar ( þskj. 118, 118. mál á 156. löggjafarþingi) vegna þess að sjúkratryggingastofnunina hafði áður skort heimild til að afla nauðsynlegra gagna við ákvörðun um réttindi og réttindagreiðslur? Átti þetta við um stöðvun niðurgreiðslu á vökvagjöf í æð fyrir einstaklinga sem greindir hafa verið með POTS-heilkenni?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Sjúkratryggingar Íslands ákváðu að frá og með 1. október 2025 yrði stöðvuð niðurgreiðsla á vökvagjöf í æð fyrir einstaklinga sem greindir hafa verið með POTS-heilkenni (e. postural orthostatic tachycardia syndrome). Ákvörðunin var tekin með vísan til þess að meðferðin teldist ekki gagnreynd enda þótt þær forsendur hefðu legið fyrir þann tíma sem niðurgreiðsla fór fram og án þess að önnur meðferð eða þjónusta kæmi í staðinn.
    Ákvarðanir um stöðvun niðurgreiðslu geta valdið miklum áhyggjum meðal sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks um réttaröryggi og vandaða málsmeðferð. Í ljósi þess að ákvarðanir Sjúkratrygginga Íslands eru stjórnvaldsákvarðanir sem þurfa að uppfylla ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, er fyrirspurn þessari beint til ráðherra.