Ferill 134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 270 — 134. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um bætur vegna tvísköttunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er afstaða ráðherra til þess að greiða þeim einstaklingum bætur sem greiddu tekjuskatt bæði við greiðslu lífeyrissjóðsiðgjalda árin 1988–1997 og svo aftur við útgreiðslu lífeyris sem þannig hafði áður verið skattlagður?
Samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, eru almennir lífeyrissjóðir undanþegnir skattskyldu og skattlagningu af fjármagnstekjum sínum. Einstaklingar greiða lífeyrisiðgjöld óskattlögð í lífeyrissjóð, þ.e. iðgjöldin eru frádráttarbær, en við útgreiðslu lífeyris er hann skattlagður hjá þeim sem tekjur við útgreiðslu og ber hann þá sömu skatthlutföll og aðrar tekjur. Lífeyrisþegar geta jafnframt nýtt sér persónuafslátt sinn til lækkunar á skattgreiðslunum sem í raun hefur verið frestað. Lengst af hefur einstaklingum verið heimill slíkur frádráttur ef frá eru talin árin 1988 frá upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda til 1997. Um frádráttarheimild einstaklinga og rekstraraðila á þessu tímabili hafa gengið fjölmargir dómar, úrskurðir og álit og má sem dæmi nefna dóm Hæstaréttar frá 19. desember 1996 í máli nr. 432/1995 (H 1996:4248), álit umboðsmanns Alþingis í málum nr. 2370/1998 og 3176/2001 og úrskurði yfirskattanefndar nr. 478/1997 og 291/2014.
Samkvæmt lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980, var öllum launamönnum og þeim sem stunduðu atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps. Atvinnurekendum var skylt að halda eftir af launum starfsfólks síns iðgjaldahluta þess og standa viðkomandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt mótframlagi sínu samkvæmt þeim reglum sem settar voru um iðgjaldsgreiðslur í reglugerð viðkomandi sjóðs eða lögum. Kom fram í lögunum að miðað væri við að í lífeyrissjóð væri greitt að minnsta kosti 10% af viðurkenndum iðgjaldsstofni.
Meðal þess sem einstaklingum var heimilt að draga frá tekjum sínum samkvæmt eldri lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, voru iðgjöld af lífeyri og iðgjöld til stéttarfélaga. Fram kom í lögunum að frádráttur vegna iðgjalda af lífeyri mætti þó ekki vera hærri en 11% af þeim launum sem almennt voru til viðmiðunar slíkum greiðslum. Hefði atvinnurekandi greitt hluta iðgjaldsins skertist réttur launþega til frádráttar sem því nam. Einstaklingar áttu þess einnig kost að velja svokallaðan fastan frádrátt í stað 11% frádráttarins og nam hann 10% af tekjum utan atvinnurekstrar.
Með lögum nr. 49/1987, sem breyttu áðurnefndum lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, voru felldir niður frádráttarliðir einstaklinga og þar með heimild til að draga iðgjöld í lífeyrissjóði frá tekjum manna utan atvinnurekstrar. Var þetta gert í tengslum við lögfestingu laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, en með þeim átti sér stað grundvallarskattkerfisbreyting að því er tekur til skatta einstaklinga utan atvinnurekstrar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 49/1987 kom fram að breytingunum væri ætlað að einfalda álagningarreglur, sem væri m.a. talið skilyrði þess að komið yrði á einföldu og skilvirku staðgreiðslukerfi. Væri breytingum samkvæmt frumvarpinu skipt í tvo þætti; annars vegar yrði myndaður einn sameiginlegur og breyttur skattstofn og hins vegar yrði álagningarreglum breytt verulega. Kom fram að frádráttarliðir yrðu afnumdir en persónuafsláttur myndi hækka mikið auk þess sem eitt skatthlutfall kæmi í stað tekjuskatts, sjúkratryggingagjalds, framlags í Framkvæmdasjóð aldraðra, sóknargjalds og kirkjugarðsgjalds.
Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði árið 1995 var um það samið að iðgjöldin yrðu frádráttarbær á nýjan leik og var því hrint í framkvæmd í áföngum á árunum 1995– 1997, þ.e. 2% 1995, 3% 1996 og 4% 1997.
Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið voru iðgjöld launþega til lífeyrissjóðs ekki frádráttarbær frá skattskyldum tekjum þeirra um nokkurt árabil en afnám hinna fjölmörgu frádráttarheimilda frá tekjum sem í gildi voru í lengri eða skemmri tíma var forsenda þess að tekið yrði upp staðgreiðslukerfi skatta sem bæði uppfyllti þær kröfur að vera einfalt og öruggt í framkvæmd. Á móti kom að skattprósentan var færð niður til samræmis auk þess sem persónuafsláttur var rúmlega tvöfaldaður. Þegar af þeirri ástæðu þykir ekki tilefni til greiðslu bóta í samræmi við fyrirspurnina og verður vart séð hvernig meta ætti slíkt meint tjón til bóta.