Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
2. uppprentun.

Þingskjal 300  —  196. mál.
Leiðréttur texti.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um fjölda og launakostnað sveitarstjórnarfulltrúa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig þróaðist fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og launakostnaður þeirra á árunum 2011– 2024? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.

    Sveitarfélög eru sjálfstæðar stjórnsýslueiningar með sérstaka stöðu innan framkvæmdarvaldsins í ljósi sjálfstjórnarréttar þeirra skv. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Í því felst að afskipti annarra stjórnvalda af þeim verður að byggja á lögum. Ráðuneytið hefur eftirlit með og staðfestir samþykktir um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp sveitarfélaga, sbr. 9. gr. sveitarstjórnarlaga, og er þá m.a. tekið til skoðunar hvort fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa í viðkomandi sveitarfélagi samræmist 11. gr. sveitarstjórnarlaga um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn. Ráðuneytið heldur þó ekki yfirlit yfir fjölda sveitarstjórnarfulltrúa í hverju sveitarfélagi en upplýsingar um einstök sveitarfélög er að finna hjá sveitarfélögunum sjálfum og í samþykktum þeirra sem birtar eru í Stjórnartíðindum. Ráðuneytinu er ekki falið með lögum að fylgjast með launakostnaði kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa með almennum hætti og liggja þær upplýsingar því ekki fyrir hjá ráðuneytinu.
    Ráðuneytið tók saman tvær yfirlitstöflur vegna fyrirspurnarinnar. Annars vegar er um að ræða yfirlit yfir fjölda sveitarstjórnarfulltrúa að afloknum sveitarstjórnarkosningum á tímabilinu sem spurt er um, þ.e. árin 2014, 2018 og 2022, sem byggt er á talnaefni frá Hagstofu Íslands. Taflan er meðfylgjandi sem fylgiskjal. Þar er einnig að finna yfirlit yfir fjölda sveitarstjórnarfulltrúa eftir kosningarnar 2010 og áætlaðan fjölda þeirra eftir kosningarnar vorið 2026. Fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa árið 2026 getur þó orðið lægri, m.a. þar sem til stendur að hefja íbúakosningu um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra í nóvember 2025. Þá mun ráðherra í sama mánuði mæla fyrir frumvarpi um breytingar á sveitarstjórnarlögum þar sem lagt verður til að lögfest verði ákvæði um lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum við töluna 250. Verði ákvæðið að lögum má gera ráð fyrir að sveitarstjórnarfulltrúum fækki um allt að 35.
    Sjá má í töflunni að nokkuð sjaldgæft er að sveitarfélög geri breytingar á fjölda sveitarstjórnarfulltrúa án þess að til komi sameining tveggja eða fleiri sveitarfélaga. Þannig var fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa alls 512 á landinu öllu að afloknum sveitarstjórnarkosningum árið 2010 en ráðuneytið áætlar að fjöldi þeirra verði að hámarki 455 eftir kosningarnar í vor. Rekja má þessa fækkun að mestu leyti til sameininga sveitarfélaga en alls 14 sameiningar hafa átt sér stað á tímabilinu þar sem 30 sveitarfélög sameinuðust öðru eða öðrum sveitarfélögum. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að neitt sveitarfélag hafi fækkað sveitarstjórnarfulltrúum á tímabilinu, nema í tengslum við sameiningar sveitarfélaga, en fimm sveitarfélög hafa fjölgað þeim. Þannig fjölgaði sveitarstjórnarfulltrúum í Garðabæ úr 7 í 11 árið 2014, Mosfellsbær fjölgaði úr 7 í 9 árið 2014 og úr 9 í 11 árið 2022, Reykjavíkurborg fór úr 15 í 23 árið 2018, Sveitarfélagið Árborg úr 9 í 11 árið 2022 og Vestmannaeyjabær úr 7 í 9 árið 2022.
    Hins vegar er um að ræða yfirlit yfir launakostnað sveitarstjórnarfulltrúa sem byggir á kjarakönnun meðal sveitarstjórnarfulltrúa sem Samband íslenskra sveitarfélaga framkvæmir á tveggja ára fresti, sjá töflu neðar í skjalinu. Niðurstöður könnunarinnar eru ekki birtar eftir sveitarfélögum heldur er sveitarfélögum raðað í ákveðna stærðarflokka. Ástæðu þess má rekja til þess að ekki öll sveitarfélög hafa tekið þátt í könnunum Sambandsins og er svarhlutfall mismunandi eftir stærðarflokkum.
    Í könnunum Sambandsins má sjá dreifingu mánaðarlauna sveitarstjórnarfulltrúa fyrir setu í sveitarstjórn. Þó ber að hafa í huga að fyrirkomulag greiðslna er mismunandi eftir sveitarfélögum og getur ýmist verið að greidd sé föst fjárhæð og þóknun fyrir hvern fund, föst fjárhæð í hverjum mánuði, greitt fyrir hvern fund eða annað fyrirkomulag. Ekki er tekið tillit til greiðslna vegna nefndarsetu í þeim upplýsingum sem birtar eru í töflunni.
    Í töflunni má sjá yfirlit yfir mánaðarlaun sveitarstjórnarfólks vegna starfa í sveitarstjórn og hversu mörg sveitarfélög sem þátt tóku í launakönnun Sambandsins greiddu laun í hverjum launaflokki á árunum 2014–2024.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
























Fylgiskjal.

Fjöldi kjörinna fulltrúa eftir sveitarfélögum.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0300-f_I.pdf