Ferill 160. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 312 — 160. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um öryggismál í jarðgöngum.
1. Hvernig hefur Vegagerðin brugðist við úrskurði ráðuneytisins frá árinu 2024 um kostnaðarskyldu vegna brunavarna í jarðgöngum samkvæmt lögum um brunavarnir og reglugerð nr. 614/2004?
Frá árinu 2024 hefur Vegagerðin unnið með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að gerð leiðbeininga um sérstakar ráðstafanir um brunavarnir í jarðgöngum. Á sama tíma hefur verið unnið að endurskoðun á áhættumati fyrir öll jarðgöng. Gert er ráð fyrir að þegar áhættumat liggur fyrir verði farið yfir hvar helsta áhættan liggur sem tengist brunaöryggi og skoðað hvað hægt er að gera til að bregðast við henni. Samhliða þessari vinnu hefur verið unnið að uppfærslu á viðbragðsáætlunum. Sú vinna er langt komin en ekki að fullu lokið.
2. Hvaða áætlanir liggja fyrir hjá ráðuneytinu og Vegagerðinni um afhendingu og dreifingu öryggisbúnaðar til slökkviliða sem sinna jarðgöngum?
Verið er að vinna að endurskoðun á áhættumati fyrir öll jarðgöng. Þegar þeirri vinnu er lokið verður hægt að vinna áætlun um breytingar á öryggisbúnaði í jarðgöngum og fyrir slökkvilið ef þörf er á aukningu.
3. Hver er staðan á gerð og kynningu leiðbeininga um viðbragðsáætlanir og öryggismat í jarðgöngum?
Unnið hefur verið með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að gerð leiðbeininga um sérstakar ráðstafanir um brunavarnir í jarðgöngum. Drög liggja fyrir hjá innviðaráðuneytinu sem eru í samráðsferli.
4. Hvaða aðgerðir hefur verið ráðist í til að stuðla að æfingum og samstarfi milli slökkviliða, Vegagerðarinnar og HMS vegna öryggismála í jarðgöngum? Ef ráðist hefur verið í aðgerðir eða vinnu hefur sú vinna verið unnin í samráði við slökkviliðin og hagsmunaaðila?
Síðustu 2–3 ár hefur Vegagerðin átt gott samstarf við slökkvilið á þeim svæðum landsins þar sem eru jarðgöng. Keyptur var æfingabúnaður og hafa frá þeim tíma verið haldnar sex æfingar á öllum svæðum þar sem eru jarðgöng. Slökkviliðin bera ábyrgð á að æfingarnar séu haldnar og hafa í öllum tilfellum skipulagt æfingarnar í samstarfi við Vegagerðina. Þessar æfingar hafa nýst vel við endurskoðun og uppfærslu viðbragðsáætlana.
Árið 2024 sóttu starfsmenn Vegagerðarinnar, sem bera ábyrgð á öryggi í jarðgöngum, ásamt fulltrúum frá helstu slökkviliðum sem sinna jarðgöngum, námskeið í Noregi um viðbrögð við bruna og björgunaraðgerðir í jarðgöngum. Í ferðinni öðluðust þeir þekkingu sem hefur nýst við endurskoðun viðbragðsáætlana í samstarfi við slökkviliðin og mun jafnframt nýtast við vinnu á áhættumati jarðganganna.
5. Eru uppi áform innan ráðuneytisins um tímabundnar úrbætur eða lausnir í öryggismálum í jarðgöngum á meðan vinna við varanlegt öryggiskerfi stendur yfir?
Stöðugt er unnið að endurnýjun og viðhaldi öryggisbúnaðar í jarðgöngum og eftir því sem fjárheimildir leyfa hefur búnaður verið efldur. Þar má m.a. nefna kantlýsingu og vöktun með atvikamyndavélum sem hafa verulega aukið eftirlitsgetu, stuðlað að bættri upplýsingamiðlun til viðbragðsaðila og þannig eflt öryggi í göngum. Á síðustu árum hafa verið gerðar umfangsmiklar endurbætur í Almannaskarðsgöngum og er þeim lokið.
Öryggiskerfi er til staðar fyrir öll jarðgöng. Vaktkerfi jarðganga sér um að vakta og stýra þeim stjórnbúnaði sem er í jarðgöngum. Að svo stöddu er ekki áformað að ráðast í ráðstafanir í jarðgöngum sem flokkast gætu sem tímabundnar. Allar aðgerðir í jarðgöngum eru erfiðar vegna aðstæðna og hafa mikil áhrif á þá umferð sem um þau fer. Lögð er áhersla á að þær aðgerðir sem ráðist verður í séu varanlegar.