Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 333  —  109. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um aflareglu í loðnu og þorski.



    Ráðuneytið óskaði eftir svörum frá Hafrannsóknastofnun vegna fyrirspurnarinnar og fara þau að aftan.

     1.      Hver var meðalafli loðnu á ári á tímabilinu 2015–2025, þ.e. frá því að núgildandi aflaregla var tekin upp til dagsins í dag?
     2.      Hver var meðalafli loðnu á ári á tímabilinu 1985–2015, þ.e. frá árinu 1985 þar til núgildandi aflaregla var tekin upp?
    Gögn um afla, stofnmat og fleira má nálgast í töflum á vef Hafrannsóknastofnunar. Samkvæmt þeim gögnum var meðalloðnuafli á árabilinu 1985–2015 um 765 þúsund tonn en árin 2016–2025 var hann 191 þúsund tonn. Í stað þess að miða við breytingar á aflareglu vill stofnunin fremur einblína á aflann fyrir og eftir þær miklu breytingar sem urðu á útbreiðslu loðnustofnsins kringum árið 2003. Á myndinni að aftan sést þróun í afla á árabilinu 1980– 2025, í meðalafla á árabilinu 1980–2003 og hins vegar á árunum 2004–2025.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Stofnunin bendir á að svipaðir hlutir hafi gerst í Barentshafi þar sem afli hefur verið mun minni eftir aldamót en fyrir þau. Vísast um þetta í mynd að aftan úr nýlegri grein þar sem „BS“ táknar afla Barentshafsloðnu, „IEGJM“ táknar afla loðnu við Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen og „NL“ táknar afla við Nýfundnaland. Minni afli tengist breytingum á framleiðni þeirra.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     3.      Hvað má áætla að meðalafli loðnu hefði orðið á ári ef þeirri aflareglu sem gilti fram til ársins 2015 hefði verið beitt, miðað við óbreyttar stofnmælingar frá því ári?
    Aflaregla fram til ársins 2015 fólst í því að skilja eftir 400 þúsund tonn til hrygningar miðað við vetrarmælingu. Var þá hvorki tekið tillit til óvissu í mælingu né afráns fram að hrygningu. Eru því 400 þúsund tonn dregin frá árlegri mælingu og meðaltal reiknað út. Meðalafli hefði þá verið um 182 þúsund tonn árin 2016–2025.

     4.      Sé niðurstaðan sú að aukinn loðnuafli hefði fengist miðað við forsendur í 3. tölul., hvað má áætla að verðmæti aflans hefði verið?
    Afli hefði orðið um 9.000 tonnum minni að meðaltali. Stofnunin áætlar því ekki verðmæti. Þegar stofn er lítill gefur ný regla jafnan hærri ráðgjöf og öfugt þegar stofninn er stór. Afli veturinn 2022 var til að mynda 691 þúsund tonn en ráðgjöf 870 þúsund tonn. Gömul aflaregla hefði gefið um 800 þúsund tonn en ráðgjöf hefði orðið lægri önnur ár með gamalli reglu.
    Á rýnifundi um stofnmat á loðnu árið 2023 var rýnt í afleiðingar þess að mjög há haustmæling á stærð veiðistofnsins árið 2021 og töluvert lægri vetrarmæling árið 2022 leiddi til hárrar ráðgjafar fyrir þá vertíð, 870 þúsund tonn. Eftir á þótti sýnt að ráðgjöf hefði verið hærri en stærð veiðistofns sem kom til hrygningar gaf tilefni til, enda náðist sem betur fer ekki allur afli sem hafði verið ráðlagður. Þetta tilfelli leiddi til breytinga á núverandi aflareglu þar sem haustmæling getur að hámarki vegið 1/ 3 hluta á móti vetrarmælingu í lokaráðgjöf um veiðar í stað þess að hún hafði áður jafnt vægi á við aðrar mælingar að vetri.

     5.      Hvert er samband hrygningarstofns og nýliðunar í loðnustofni?
    Loðna er skammlíf tegund þar sem hrygningarstofn samanstendur jafnan að stærstum hluta af einum árgangi. Einkenni þeirra er því að nýliðun (árgangastyrkur) ræður sveiflum í stofnstærð þeirra. Á mynd að aftan sést að ekki er tölfræðilega marktækt samband milli nýliðunar og hrygningarstofns. Þegar kemur að því að nota þessar upplýsingar fyrir stjórnun veiða á þessum skammlífa stofni er aðeins horft til eins þáttar, við hvaða lágu stærð hrygningarstofns má gera ráð fyrir skertri nýliðun. Samband hrygningarstofns og nýliðunar hefur með öðrum orðum þýðingu fyrir þennan stofn í ákvörðun á aðeins einum viðmiðunarpunkti í tengslum við aflareglu, þ.e. B lim. Þessi punktur var endurskoðaður á rýnifundi um stofnmat og lækkaði úr 150 þúsund tonnum í 114 þúsund tonn. Hann ákvarðast af endurmati á stærð hrygningarstofns áranna 1980, 1981 og 1990 (meðaltal yfir stærð hrygningarstofns áranna þriggja) þar sem þetta eru þau ár með minnsta hrygningarstofn sem gáfu samt af sér sterka árganga (rauður hringur auðkennir þau). Aflaregla miðast því við að skilja eftir að minnsta kosti 114 þúsund tonn af loðnu til hrygningar með 95% vissu.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     6.      Hverjar eru helstu ástæður þess að þorskafli hefur dregist verulega saman undanfarin ár þrátt fyrir að aðhaldssamri aflareglu hafi verið fylgt?
    Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar byggist á aflareglu íslenskra stjórnvalda. Við setningu aflareglna hafa stjórnvöld haft markmið um hámarksafrakstur, innan ramma varúðarsjónarmiða, að leiðarljósi.
    Á undanförnum árum hefur þorskafli dregist saman úr um 270 þúsund tonnum í 220 þúsund tonn eftir að hann óx umtalsvert frá árinu 2008 þegar aflareglu var seinast breytt. Stofnmatsaðferðin var uppfærð árið 2020 í kjölfar endurskoðunar á aflareglu og var því um meiri lækkun að ræða í ráðlögðum afla en ella þar sem metið er að veiðiálag árin þar á undan hafi verið umfram það sem stefnt var að samkvæmt aflareglu. Vísast um þetta til svars við 7. tölul. Frá árinu 2015 hefur stofnstærð að öðru leyti fylgt sveiflum í nýliðun og meðalþyngdum.
    Þegar aflareglur eru metnar er nýliðunarmynstur í framtíðinni hermt út frá nýlegum nýliðunargildum svo að spá um framtíðarnýliðun sé svipuð þeirri sem sést hefur nýverið. Í nýlegriskýrslu um aflareglu má sjá dæmi um slíka vinnu og á mynd að aftan.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Á myndinni að framan má sjá stofnmat frá árinu 1985 og spár um nýliðun þriggja ára (e. recruitment), veiðihlutfall (e. harvest rate), afla í þúsundum tonna (e. catch), viðmiðunarstofn (B4+) og hrygningarstofn (SSB). Hér táknar bláa línan eina hermun en með rauðum böndum eru dregnar saman niðurstöður úr öllum keyrslum. Miðlína í rauðu táknar miðgildi en 50% gilda liggja fyrir ofan hana og 50% fyrir neðan. Miðrautt band kringum línuna sýnir bilið þar sem 50% allra gilda liggja, næsta band út frá miðju sýnir 80% og ysta bandið sýnir 90% allra hermaðra gilda.
    Í annarri skýrslu, en byggt á sömu hermunum, má sjá að tíðni þess að afli minnki um 50 þúsund tonn á fjögurra ára tímabili er frekar algeng eða um 14% tímans við 20% veiðihlutfall.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Á myndinni að framan sést tíðni tilvika þar sem afli minnkar um meira en 50 þúsund tonn á fjögurra ára tímabili sem fall af veiðihlutfalli.

     7.      Hver var mæld stofnstærð (viðmiðunarstofn) þorsks á árinu 2019 og hvert var endurmat hans á yfirstandandi ári?
    Upplýsingar um alla ráðgjöf þorsks má finna á vef Hafrannsóknastofnunar.
    Í ráðgjafarskjölum frá 2019 var viðmiðunarstofn þorsks metinn 1.402 þúsund tonn en mat hans árið 2025 var 1.135 þúsund tonn.
    Niðurstöður stofnmats árið 2019 og útskýringar á breytingum milli ára má finna í ráðgjafarskjali frá árinu 2020. Helstu breytingar milli þessara ára voru að hámarksaldur þorsks sem fylgt var eftir í stofnmatslíkaninu var hækkaður úr 10 árum í 14 ár. Sögulega séð var 10 ára aldur nægjanlegur hámarksaldur til að keyra líkönin þar sem mjög fáir fiskar eldri en 10 ára veiddust í rannsóknarleiðöngrum og skortur var á gögnum um eldri fisk því að hann var einfaldlega ekki til staðar. Eftir árið 2011, með minnkandi veiðiálagi, fjölgaði eldri fiskum hratt í stofninum. Samanburð á stofnmati þorsks á árunum 2016–2025 má sjá á mynd að aftan en rauð lína táknar árið 2025.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Ef eldri árgangar eru ekki teknir inn þegar þeir eru orðnir nokkuð stórir er hætt við því að stofnmatið endurspegli illa veiðanleika þeirra og að matið verði bjagað. Í þessu tilviki var matið of hátt. Farið var yfir stofnmatið innan ráðgjafanefndar Hafrannsóknastofnunar um bolfiska og það síðan lagt fyrir vinnunefnd ICES (NWWG, í ytri endurskoðun). Lagt var til að grunni ráðgjafarinnar og stofnmatslíkansins yrði breytt. Í aflaregluvinnu árið eftir var það aftur rýnt og ákveðið að nota 14 ára hámarksaldur.

     8.      Hvernig fer endurmat á stofnstærðum fram?
    Árlegt stofnmat er byggt á nýjustu gögnum. Sú vinna er unnin af vinnunefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Engar breytingar eru gerðar á stofnmatsaðferð. Komi veruleg frávik fram frá því sem búist mætti við má lagfæra stofnmatsaðferðina. Stofnmatsaðferð er uppfærð á fimm til sjö ára fresti. Fyrir þorsk hefur þessi endurskoðun komið í kjölfar endurskoðunar aflareglu.
    Fyrir stofna sem metnir eru af ICES, eins og þorsk, breytist aðferðin við stofnmat almennt ekki nema ráðist sé í svokallað ICES-rýniferli (e. benchmark) eða prófanir, sem er endurskoðunarferli til að uppfæra aðferðafræði, eða ef íslensk stjórnvöld óska eftir endurmati á aflareglu og tengdum stofnmatsaðferðum. Í báðum tilvikum taka að minnsta kosti þrír utanaðkomandi sérfræðingar, fulltrúi frá ICES og nokkrir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar þátt í röð funda og einnar viku vinnustofu til að móta endanlegar tillögur ICES um aðferðafræði og varúðarsjónarmið aflareglna. Minni háttar breytingar á stofnmatstækni má þó gera milli rýnifunda ef sá vinnuhópur ICES sem metur stofninn (NWWG fyrir þorsk) er sammála um að breytingarnar séu nauðsynlegar, líkt og þegar teknir voru inn fleiri aldurshópar í stofnmatslíkanið árið 2019.
    Í tilviki stofns eins og þorsks (flokkast sem „Category 1“), þar sem mikið er til af gögnum, eru skilgreindar mögulegar aflareglur og hermilíkan keyrt (eins og lýst er í svari við 6. tölul.) til að prófa áhrif mismunandi aflareglna. Ef um er að ræða mat á aflareglu sem íslensk stjórnvöld hafa óskað eftir eru reglurnar skilgreindar í beiðninni. Í dæmigerðu ferli er ráðgjafarregla ICES metin en einnig má skoða aðrar reglur. ICES mælir aðeins með aflareglu eða ráðgjafarreglu ef sýnt er fram á að hún fylgi varúðarnálgun, þ.e. að líkur á að hrygningarstofn (SSB) fari undir B lim til lengri tíma séu minni en 5%. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að varúðarnálgun stjórnunaráætlunar veltur á stofnmatstækni, svo að ráðlegt er að endurmeta hvort tveggja í einu.

     9.      Hvað má ætla að þorskaflinn hefði orðið mikill á síðasta fiskveiðiári ef tekið hefði verið mið af þeirri aflareglu sem gilti fram til ársins 2015?
    Sama aflaregla var í gildi á tímabilinu 2009–2015 og eftir árið 2015.

     10.      Sé niðurstaðan sú að aukinn þorskafli hefði fengist miðað við forsendur í 9. tölul., hvað hefði sú aflaaukning skilað þjóðarbúinu miklu í útflutningsverðmætum?
    Engar breytingar voru á aflareglu, sbr. svar við 9. tölul.

     11.      Hvers vegna hefur ekki orðið öflug nýliðun í þorski síðan árið 1985?
    Ekki eru haldbærar skýringar á því hvers vegna eins góð nýliðun og fyrir árið 1985 sést ekki. Engar afgerandi breytingar áttu sér stað í umhverfisþáttum fyrr en eftir árin 1996 og 1997. Á þessum tíma fór hrygningarstofninn minnkandi og stækkaði ekki fyrr en eftir aldamót en þá voru uppi breytt umhverfisskilyrði.
    Í skýrslu um aflareglu árið 2009 var farið yfir atriði sem talin voru skipta máli varðandi nýliðun. Þó er orsakasamhengi þeirra ekki alltaf skýrt eða erfitt er að meta það.
    Að aftan er að finna þýðingu á vangaveltum sem tilteknar voru í skýrslunni á bls. 17. Ítarlegri umfjöllun má lesa í skýrslunni sjálfri.
     *      Minnkun búsvæðis á uppeldisslóð þorsks við Grænland sökum umhverfisbreytinga hófst undir lok 7. áratugar síðustu aldar.
     *      Veiðar á loðnu. Loðna er mikilvægasta bráð þorsks. Í Barentshafi hefur aukið sjálfsrán þorsks verið tengt við minnkandi stofnstærð loðnu. Þrátt fyrir að sjálfsrán þorsks við Ísland hafi ekki verið metið eins hátt og hjá Barentshafsþorski gæti aukin loðnuveiði á Íslandsmiðum, sem hófst á 8. áratugnum, hafa haft áhrif.
     *      Stíflun stórra jökuláa, sem renna beint til helstu hrygningarstöðva þorsks við suðvesturströnd Íslands, gæti hafa haft skaðleg áhrif á náttúruleg umhverfisskilyrði, mögulega haft áhrif á lifun eggja og lirfa og/eða breytt náttúrulegu reki þeirra á lirfustigi.
    Mörg dæmi eru um það hjá fiskstofnum að komið hafa tímabil með mismunandi framleiðni. Dæmi um stofna þar sem slík tímabil hafa sést eru makríll, skötuselur og langa. Hjá öllum þessum stofnum mátti sjá sterka árganga og í framhaldinu mjög lélega nýliðun á árabilinu 2003–2016. Sveiflur hjá stofnum eins og ýsu og kolmunna hafa einkennst af mjög hárri óreglulegri nýliðun. Nýliðunarmynstur skarkola lækkaði mikið eftir árið 1993 og er sú niðursveifla jafnvel sterkari en hjá þorski.
    Þegar framleiðni stofna hefur lækkað eru dæmi um að slíkt ástand geti varað í nokkra áratugi, oft án góðrar skýringar, eins og staðan hefur verið hjá þorski og skarkola. Hins vegar er engin ástæða til þess að áætla að slíkt ástand geti ekki breyst til batnaðar í framtíðinni.